Fyrrverandi borgarstjóri í DeRidder í Louisiana hefur verið fundin sek af kviðdómi fyrir kynferðisbrot gegn ólögráða pilti, samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla.
Missy Roberts, sem gegndi embætti borgarstjóra þegar atvikið átti sér stað árið 2024, var fundin sek um tvö alvarleg brot er varða kynferðisbrot gagnvart barni. Kviðdómur komst að niðurstöðu á innan við einni klukkustund.
Samkvæmt framburði fyrir dómi átti atvikið sér stað í sundlaugarboði þar sem áfengi var haft um hönd. Brotaþolinn, sem var 16 ára á þeim tíma, bar vitni um að hann hefði átt í kynferðislegum samskiptum við Roberts á meðan hann var undir áhrifum áfengis.
Sonur Roberts bar einnig vitni og sagði hann hafa séð móður sína og vin sinn saman í gegnum glufu í glugga. Dóttir Roberts kvaðst sömuleiðis hafa orðið vitni að atvikinu. Þá gaf fyrrverandi náinn vinur og tengdasystir Roberts skýrslu fyrir dómi og sagðist hafa heyrt son hennar kalla að móðir hans hefði átt í kynferðislegum samskiptum við besta vin sinn.
Í réttarhöldunum kom einnig fram að móðir piltsins hefði sent Roberts skilaboð í kjölfar atviksins þar sem hún spurði um mögulega þungun. Roberts hafi þá svarað því til að hún væri á getnaðarvörn.
Roberts sagði af sér embætti skömmu áður en hún var handtekin árið 2024. Henni gæti verið gert að sæta allt að 17 ára fangelsisrefsingu þegar dómur verður kveðinn upp í apríl.


Komment