
Breskur blaðamaður segir að ísraelski herinn hafi reynt að ráða hann af dögum eftir að loftárás lenti nærri honum og myndatökumanni hans í suðurhluta Líbanons.
Blaðamaðurinn Steven Sweeney segir að hann hafi verið við störf við umfjöllun um „þvingaða brottflutninga einnar milljónar manna“ og þjóðernishreinsanir Ísraels í landinu þegar árásin átti sér stað. Hann heldur því fram að hann hafi verið markvisst tekinn fyrir.
Á myndbandi af atvikinu sést Sweeney í skotheldu vesti merkt „Press“ á meðan hann sinnir fréttaflutningi fyrir rússneska ríkismiðilinn RT.
Ísraelsk yfirvöld hafa haldið því fram að viðvaranir hafi verið gefnar fyrir árásina, en Sweeney hafnar því og segir að engar slíkar viðvaranir hafi borist. Hann telur að markmiðið hafi verið að þagga niður í blaðamönnum sem fjalla um stríðsátök.
Í færslu á samfélagsmiðlum skrifar hann meðal annars:
„Í dag reyndi Ísrael að drepa mig í markvissri loftárás í suðurhluta Líbanons á meðan ég var að fjalla um árásir á brýr og þvingaða brottflutninga einnar milljónar manna, þjóðernishreinsun á stærri skala en Nakba.“
Hann bætir við:
„Ég efast ekki um að þetta hafi verið viljandi. Þrátt fyrir fullyrðingar voru engar viðvaranir fyrir árásina og engar tilkynningar sendar til líbanska hersins sem hafði veitt okkur leyfi til að mynda.“
Sweeney segir jafnframt að eins og á Gasa vilji Ísrael „þagga niður í blaðamönnum sem skrásetja og greina frá stríðsglæpum“. Þá gagnrýnir hann einnig vestræn ríki og segir þau bera ábyrgð með stuðningi sínum við Ísrael.
Að hans sögn muni árásin þó ekki fæla hann frá störfum:
„Ef Ísrael heldur að árás dagsins muni þagga niður í okkur og halda okkur frá vettvangi þá hefur það rangt fyrir sér.“

Komment