
Karlmaður úr Mosfellsbæ hefur verið dæmdur fyrir að ráðast á kærustu sína í tvígang.
Hann var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 25. nóvember 2023, á heimili brotaþola að í Reykjavík ýtt ítrekað í hana, hrint henni í rúm og á gólf og tekið hana hálstaki með þeim afleiðingum að kærastan hlaut marbletti á hálsi, höndum og sköflungum ásamt sprunginni efri vör.
Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa, aðfaranótt laugardagsins 17. febrúar 2024, á heimili hennar að í Reykjavík, hrint henni í gólfið og úðað úr úðavopni á hana og í framhaldinu sprautað á hana úr slökkvitæki, með þeim afleiðingum að hún hlaut marbletti á hand- og fótlegg.
Sömuleiðis er hann ákærður fyrir að hafa brotið sjónvarpið hennar og kommóðu.
Maðurinn neitaði sök en var fundinn sekur.
Hann var dæmdur í tvo mánaða fangelsi og er dómurinn skilorðsbundinn til tveggja ára.
„Ákærði greiði A 400.000 krónur, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 300.000 krónum frá 25. nóvember 2023 til 17. febrúar 2024 en af 400.000 krónum frá þeim degi til 4. október 2025, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags, og 600.780 krónur í málskostnað,“ segir í dómnum.

Komment