Fyrrverandi forsetafrú Íslands kemur fyrir í Epstein-skjölunum í samhengi sem hefur verið illskiljanlegt. Hún útskýrir sambandið við fólkið í innsta hring Epsteins og hvers vegna hún lýsir honum öðruvísi í dag en áður.
Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands frá árunum 2003 til 2016, kemur fyrir í Epstein-skjölunum svokölluðu og símanúmer hennar var í tengiliðaskrá viðskiptajöfursins og kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein, ásamt hundruðum annarra. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands til 20 ára, kemur líka fyrir í skjölunum, en aðeins í því samhengi að vera eiginmaður hennar. Þetta varð ljóst eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið birti gögn Alríkislögreglunnar (FBI), sem fengust úr rannsókn málsins og tölvukerfi Epsteins.
Dorrit samþykkti að svara skriflegum spurningum Mannlífs um birtingarmynd sína í Epstein-skjölunum, gegn þeirri kröfu að öll svörin yrðu birt, sem er gert hér.
Forsetafrúin þáverandi segir þar að hún og Ólafur hafi snúið við á punktinum þegar Jeffrey Epstein var andspænis þeim á heimili vinar hennar í Bandaríkjunum. Áður hafði Ólafur sagt að hann hefði aldrei hitt Epstein og Dorrit að ekkert óeðlilegt hefði verið í hegðun Epstein. „Það var ekkert furðulegt við hann,“ sagði hún árið 2019, en nú segist hún hafa forðast hann alfarið vegna þess að hún hefði haft slæma tilfinningu fyrir honum. Hún hafi þróað með sér innsæi um hvort fólk sé traustsins vert.
Þegar hún hafi hitt hann síðast, ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, hafi þau gengið út. „Við hittumst við sama tækifæri fyrir 25 árum. Ég krafðist þess að við yfirgæfum bæði herbergið þegar í stað.“
„Ég krafðist þess að við yfirgæfum bæði herbergið þegar í stað“
Við innsta hring Epsteins
Epstein-skjölin virðast hins vegar staðsetja hana félagslega nálægt innsta hring, en Dorrit hefur lengi lifað og hrærst í félagslífi bresku yfirstéttarinnar. Það hefur líka komið fram opinberlega að Dorrit sótti 51 árs afmæli samverkakonu Epsteins, Ghislaine Maxwell, sem nú situr í fangelsi. Þar var hún meðal annarra ásamt Andrési prins, sem nú hefur verið úthýst úr bresku konungsfjölskyldunni.
Í spurningunum eru leitað svara við raunverulegum tengslum Dorritar við Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell og merkingu tveggja tölvupósta til Epsteins sem fjalla um Dorrit. Í öðrum póstanna segir rithöfundurinn og nýaldarspekingurinn Deepak Chopra í skilaboðum til Epsteins frá því að Dorrit og „íslenski eiginmaður hennar“ séu stödd í The St. Regis Aspen Resort lúxushótelinu í skíðabænum fræga Aspen í Colorado í Bandaríkjunum, þar sem Chopra stýrði hugleiðslu. Þetta var 2016, skömmu eftir að Ólafur Ragnar vék úr forsetastóli.
Hinn pósturinn er sendur á milli tveggja úr innsta hring Epsteins með tilvísun í Dorrit á meðan hún var forsetafrú 2011. Sendandinn er Ghislaine Maxwell og viðtakandinn Leon, sem allt bendir til að sé auðmaðurinn Leon Black, en hann greiddi Epstein samtals 158 milljónir Bandaríkjadala árin 2012 til 2017 og var langstærsta uppspretta fjármagns fyrir Epstein á þeim tíma.
„Hæ Leon. Ghislaine hér. Ég sat með Dorrit sem sagði mér að ég ætti að senda þér tölvupóst strax!“ segir Ghislaine. Póstinn áframsendi hún síðar á Epstein honum til upplýsingar. Tilgangur póstsins var að bjóða fram þjónustu Maxwell við að velja fólk í stjórnir fyrirtækja. Epstein fer síðan árið eftir að fá háar greiðslur frá Black, allt að 40 milljónum dala á ári, fyrir ráðgjöf. Stigvaxandi spenna er síðan í samskiptum hans við Leon Black. Af óljósum ástæðum leggur síðan Leon Black hundruð þúsunda dala, eða tugmilljónir króna, inn á minnst þrjár konur sem voru tengdar Epstein, samkvæmt greiningu New York Times. Sjálfur hafði Black verið sakaður um nauðgun af minnst tveimur konum í húsi Epsteins á Manhattan í New York.
„Hæ Leon. Ghislaine hér. Ég sat með Dorrit sem sagði mér að ég ætti að senda þér tölvupóst strax!“
Ekkert kemur fram sem bendir til aðkomu eða tengslum Dorritar að neinum viðskiptum eða brotum. Sjálf segir hún Leon Black hafa verið „fjölskylduvin“ sem hún þekkti í áratugi.
En fyrir Epstein hafi hún haft slæma tilfinningu og forðast hann, þrátt fyrir að hún hafi lýst því yfir fyrir sjö árum að ekkert hefði verið óeðlilegt í hegðun Epsteins, þegar nafn hennar birtist fyrst í símaskrá Epsteins. „Það var ekkert furðulegt við hann,“ svaraði hún blaðamanni DV.
Vinkona Dorritar, Ghislaine Maxwell, sem hélt tvisvar ræðu í samtökum Ólafs Ragnars Grímssonar, Arctic Circle, var handtekin 2020 og dæmd ári síðar í 20 ára fangelsi, meðal annars fyrir mansal á börnum í samstarfi við Epstein. „Ég var afar hissa og í áfalli,“ segir Dorrit.
Spurningar Mannlífs til Dorritar eru skáletraðar.
Sæl Dorrit,
hér eru spurningar til þín vegna opinberrar umfjöllunar í Bandaríkjunum, Evrópu og á Íslandi, út frá því að þú varst forsetafrú Íslands.
Í tölvupósti frá Deepak Chopra [rithöfundar og nýaldargúrús] til Jeffreys Epstein 24. september 2016 vísar Chopra greinilega til þín sem „Dorrit“ á „first-name basis“. Það gefur til kynna að Epstein hafi þekkt vel til þín.
Dorrit: „Ég hef þekkt herra Chopra í áratugi. Við notuðum fornöfn. Ég bjó í sömu íbúðablokk og Jeffrey Epstein í London. Við notuðum bara fornöfn. Þetta er lítil bygging. Með fimm leigjendum, held ég.“
Á ljósmynd frá 23. september 2012 séstu ræða við Ghislaine Maxwell ásamt Mette-Marit, krónprinessu Noregs. Varstu meðvituð um samskipti og samband Mette-Marit við Jeffrey Epstein? Hittirðu þau einhvern tímann saman?
Dorrit: „Nei, ég var ekki meðvituð um samskipti eða samband krónprinsessunnar við Jeffrey Epstein. Hef aldrei hitt þau saman.“
Fram hefur komið að Jeffrey Epstein hafi haft símanúmer þitt á tengiliðalista. Áttirðu mörg símtöl við Epstein?
Dorrit: „Einu samtölin sem ég hef átt við Jeffrey Epstein voru varðandi lyftu í byggingunni okkar sem virkaði ekki, þar sem hann var svo vingjarnlegur að bera upp farangurinn fyrir mig.“
Hvenær talaðirðu síðast við hann?
Dorrit: „Síðasta skiptið sem ég talaði við Epstein var fyrir 25 árum.“
Um hvað töluðuð þið þá?
Dorrit: „Halló og bless! Ég gekk út á stundinni sem hann gekk inn.“
Hvenær hittirðu Epstein síðast?
Dorrit: „Fyrir 25 árum.“
Hvað rædduð þið helst?
Dorrit: „Halló og bless.“
Ræddir þú einhvern tímann málefni íslenska ríkisins við Epstein?
Dorrit:„Nei, ég reyndi af fremsta megni að forðast að eiga samtöl við hann.“
Hittir þú einhvern tímann Epstein með Ólafi Ragnari Grímssyni?
Dorrit: „Já, við hittumst við sama tækifæri fyrir 25 árum. Ég krafðist þess að við yfirgæfum bæði herbergið þegar í stað.“
„Hann var svo vingjarnlegur að bera upp farangurinn fyrir mig.“
Hvenær hittirðu Ghislaine Maxwell síðast?
Dorrit: „Fyrir nokkrum árum á Íslandi á Arctic Circle.“
Í áframsendum tölvupósti frá Ghislaine Maxwell til viðskiptafélaga Jeffreys Epstein, Leons Black, sem Maxwell áframsendi til Jeffreys Epstein 22. september 2011, kemur fram að þú hafir á fundi með Maxwell lagt til við hana að hún biði þjónustu sína - við að finna stjórnarmenn í félög - til Blacks. Kannastu við þetta?
Dorrit: „Nei, mjög skrítið.“
Veittirðu Maxwell og/eða Epstein reglulega ráðgjöf eða tengdir þau við tiltekna aðila?
Dorrit: „NEI.“
Hefur þú komið á eyju Epsteins, Little Saint James í Karíbahafi?
Dorrit: „Nei, ég hef haldið mig eins fjarri og mögulegt er.“
Mannlíf sendi Dorrit frekari spurningar í eftirfylgni. Í símtali blaðamanns við Dorrit vegna þeirra lýsir hún undrun sinni á því að Epstein-skjölin séu til umfjöllunar, þar sem lítill áhugi sé fyrir þeim.
„Segðu mér, er þetta alvöru vinnan þín, að vera blaðamaður? Það er það ekki, er það?“ spyr hún. Síðar slær hún á léttari strengi og ræðir við fólk í kringum sig um hver hafi áhuga á Epstein-skjölunum.
Hún sendir síðar skrifleg svör.
Hver hefur áhuga á Epstein-skjölunum?

„Af hverju hafið þið öll svona mikinn áhuga á þessu? Ég skil það ekki. Sennilega er ekkert annað í gangi, segðu mér hvað annað mikilvægt er í gangi,“ segir Dorrit í símtali við blaðamann Mannlífs þegar hann fylgir eftir spurningum til hennar vegna birtingar hennar í Epstein-skjölunum.
Í símtalinu talar Dorrit við fólk í kringum sig. „Hæ stelpur, les einhver hérna tölvupóstana í Epstein-skjölunum?“
Engin svör koma, svo hún snýr sér aftur að símanum. „Þær horfa allar á mig með tómu augnaráði, það er enginn áhugi á þessu yfirhöfuð,“ segir hún glaðlega. „Ekki einu sinni smá, þetta er svo fyndið. Segðu mér, hvað annað þarftu að vita?“
Dorrit talar við aðra manneskju sem virðist hafa bæst í hópinn. „Hefur þú lesið tölvupóstana? Ó, hefurðu það? Hvað hefurðu lesið?“ spyr hún og ansar svo svarinu. „Nei, það eru þættir á Netflix elskan, það er ekki raunverulegt.“
Eftir að viðmælandi Dorritar staðfestir að hann sé að vísa í Epstein-skjölin spyr forsetafrúin fyrrverandi: „Og þú hefur ekkert annað að gera en að sitja þarna og …?“
Viðmælandinn grípur inn í: „Nei, aðstoðarmaðurinn minn sagði mér það.“
Dorrit svarar manneskjunni glaðhlakkalega. „Ah, svo aðstoðarmaðurinn þinn sagði þér það, þú last það ekki.“
Hún beinir samtalinu aftur að blaðamanni. „Svo þú hefur séð viðbrögðin á skrifstofunni minni.“
„Já, en þetta er umræðuefnið um allan heim núna,“ svarar blaðamaður.
„Ókei, ég ætla að senda ykkur. Þetta er svo fyndið. Ókei, hvað annað er í gangi?“ spyr Dorrit.
Manstu eða getur þú upplýst hvers vegna Epstein var með símanúmer skráð við þitt nafn í tengiliðaskrá?
„Þetta er spurning sem aðeins hann vissi [svar við]. Jeffrey var nágranni minn fyrir 40 árum, það er afar líklegt að ég hafi gefið honum það. Ég sé enga ástæðu fyrir því að ég hefði ekki átt að gera það. Það var líka skráð í símaskránni.“
Í símtali við blaðamann segir Dorrit enn frekar: „Ég er að tala um fyrir 40 árum. Ég hef ekki búið á þeirri eign í 38 ár.“
Þekkir þú og hefur hitt Leon Black?
Dorrit: „Já, ég þekki Black-fjölskylduna. Ég hef þekkt þau í marga áratugi. Þau eru vinir mínir.“
Útilokar þú að hafa setið með Ghislaine Maxwell og rætt um Leon Black, sem kemur fram í tölvupósti frá Maxwell til Leons Black og Jeffreys Epstein?
Dorrit: „Ég get ekki útilokað það 100%, en ég sé nákvæmlega enga ástæðu fyrir því að ég hefði átt að nefna hann, sérstaklega í þessu samhengi. Herra Black er mikill listasafnari. Ég gæti hafa minnst á list hans, en örugglega ekki viðskipti hans. Og ég skil satt best að segja ekki hvers vegna ég hefði nefnt þetta við Ghislaine. Fyrirtæki hans er skráð á markað. Síðasta manneskjan sem þyrfti að gefa þeim ráð er Ghislaine eða ég.“
Hvers vegna létuð þið Ólafur Ragnar ykkur hverfa þegar þið voruð á sama stað og Jeffrey Epstein? Og hvers vegna forðaðist þú að ræða við hann? Hafðir þú heyrt af eða orðið vitni að athæfi hans? Ef svo, hvað hafðir þú upplifað?
Dorrit: „Frá unga aldri vann ég í búð föður míns í Jerúsalem. Ég byrjaði að vinna þar 10 ára gömul. Þetta var löngu fyrir tíma kreditkorta. Alls konar fólk kom inn. Samningar voru gerðir með handabandi. Maður þróaði með sér innsæi, tilfinningu fyrir því hvers konar persónu maður var að eiga við, hvort þeir eru traustsins verðir.
Þetta hefur verið innrætt í mig og fjölskyldu mína í kynslóðir. Þetta er næstum orðið hluti af genum okkar.
Faðir minn, sem var ólæs, hafði frábært innsæi, hann hvatti mig til að þróa það. Það er eins og loftnet sem varar mann við. Svolítið eins og tilfinningin sem Samson [íslenskur fjárhundur Ólafs og Dorritar] fær þegar hann hittir einhvern sem honum líkar ekki við.
Mér líkaði einfaldlega aldrei við Jeffrey. Og vildi ekki vera í félagsskap hans. Auðvitað gat ég ekki forðast að rekast á hann á leið inn og út úr byggingunni okkar.“
Þú þekktir Ghislaine Maxwell. Vissir þú að hún væri í sambandi og samstarfi við Jeffrey Epstein og reyndirðu að vara hana við því? Rædduð þið nokkurn tímann athæfi Epsteins eða dóminn yfir honum fyrir kynferðisbrot sem féll 2008?
„Mér líkaði einfaldlega aldrei við Jeffrey. Og vildi ekki vera í félagsskap hans.“
Dorrit: „Ég vissi, eins og allir aðrir sem bjuggu í Bretlandi, að Ghislaine var í sambandi með Jeffrey. Hvers konar samband það var hafði ég ekki hugmynd um.
Faðir hennar var áberandi dagblaðaeigandi, svo hún var alltaf með slúðrið á hreinu. Ég held ég hafi aldrei séð þau saman. Ég átti ekki þannig vinskap við hana.“
Í símtali við blaðamann segist Dorrit enn frekar „alls ekki“ hafa varað Maxwell við Epstein, þar sem hún „átti ekki þannig samband við hana“.
Kom þér á óvart að Maxwell, sem þú þekktir, hefði verið dæmd fyrir mansal og samsæri um að útvega Epstein stúlkur, allt niður í 14 ára aldur?
Dorrit: „Já, ég var afar hissa og í áfalli. Ég skil það enn ekki.“
Í Epstein-skjölunum er ekkert sem bendir til þess að Dorrit eða Ólafur hafi brotið af sér með neinum hætti.
„Ég var afar hissa og í áfalli“
Ekki er ljóst hvers vegna Deepak Chopra sá ástæðu til að upplýsa Jeffrey Epstein um að Dorrit væri í Aspen. Epstein hafði anga víða og lýsir í öðrum hlutum skjalanna áhuga á Íslenskri erfðagreiningu, þegar hann reyndi að stofna til sambærilegrar erfðagreiningar á Jómfrúareyjunum.
Ekki er heldur ljóst hvers vegna Dorrit lýsti Epstein þannig árið 2019, að það væri „ekkert furðulegt við hann“, en forðaðist hann samt markvisst og vék úr viðurvist hans tafarlaust.
Mannlíf spurði Dorrit að því hvers vegna lýsingar hennar á Epstein hafi breyst frá árinu 2019.
Hvers vegna sagðir þú við DV árið 2019 að ekkert hefði verið furðulegt við Epstein, en núna segistu hafa forðast hann vegna þess hvernig hann kom fyrir?
„Það var ekkert skrítið við hann. Mér líkaði bara ekki við hann, svolítið slepjulegur,“ svarar Dorrit.
Þá er ekki fyllilega ljóst hvers vegna Ólafur Ragnar sagði í viðtali við Fréttablaðið árið 2019 að hann hefði aldrei hitt Epstein, en Dorrit lýsir því að hún hafi krafist þess að yfirgefa herbergið þegar í stað.
„Epstein hef ég aldrei hitt,“ sagði Ólafur Ragnar í fyrrgreindu viðtali við Fréttablaðið. Þá sagðist hann lítið þekkja Ghislaine Maxwell.
„Hún talaði á Arctic Circle um hafið. Að öðru leyti hef ég engin tengsl við hana og hef ekki hitt hana nema í þessu samkvæmi í New York og þegar hún talaði á Arctic Circle."
Einn af meðstofnendum Ólafs Ragnars í Arctic Circle, Scott Borgerson, varð síðan eiginmaður Maxwell árið 2016.
Elítan hreinsar sig af Epstein
Dorrit, sem var forsetafrú Íslands í 13 ár, er ein fjölmargra í elítu Vesturlanda sem hafa svarað fyrir hvers kyns tengingu, samskipti og samband við Epstein eftir að gögn fóru í birtingu.
Margir þeirra, til að mynda Elon Musk, ríkasti maður heims, eigandi X og forstjóri Tesla, hafa gert lítið úr tengslum sínum og sagst hafa hafnað boði um að koma á eyju Epsteins, áður en nýjustu gögnin stönguðust á við staðhæfingar hans, þar sem hann hafði sjálfur beðið um að koma, en ekki farið á endanum. Sama gildir um viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, Howard Lutnick, sem hafði áður sagt að hann hefði ákveðið árið 2005 að hann myndi „aldrei vera inni í sama herbergi og þessi ógeðslega manneskja“. Nýju gögnin sýna að hann skipulagði símtöl við Epstein og reyndi að hitta hann í drykki árið 2011. Árið eftir planaði hann og eiginkona hans að fara með börnin sín í heimsókn á eyju Epsteins. Á aðfangadag sama ár var Lutnick boðið í hádegisverð hjá Epstein og aðstoðarmaður hans sendi Lutnick skilaboð: „Það var gaman að hitta þig.“
Í Noregi virðast vera meiri afleiðingar af samskiptum elítunnar við Epstein. Oft byggir það á opinberum trúnaðarstörfum viðkomandi. Thorbjörn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, var framkvæmdastjóri Evrópuráðsins þegar hann átti í sambandi við Epstein. Nú er rannsakað hvort hann hafi þegið greiða frá Epstein.
Bandaríska alríkislögreglan telur að þolendur Epsteins séu um þúsund talsins, en aðeins Ghislaine Maxwell var ákærð.



Komment