1
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

2
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

3
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

4
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

5
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

6
Minning

Megas er látinn

7
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

8
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

9
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

10
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Til baka

Telur stærra eldgos í aðsigi á Svartsengissvæðinu

„Næsti kafli er væntanlega stórgos sem mögulega vara í lengri tíma.“

Jón Frímann Jónsson
Jón Frímann JónssonJón Frímann spáir stóru gosi
Mynd: Facebook

Jón Frímann Jónsson, stjórnandi Facebook-hópsins Jarðfræði á Íslandi, virkni, framtíð og fortíð, telur að merki séu um að eldvirkni á Svartsengissvæðinu sé að færast í nýjan og öflugri farveg. Jón hefur vakið athygli fyrir að hafa reynst ótrúlega sannspár þegar kemur að eldgosum á svæðinu.

Í nýjum færslum sínum í hópnum segir hann að breytingar hafi orðið á síðustu sólarhringa sem bendi til aukinnar virkni:

„Það er að sjá á myndum að heitu svæðin hafa stækkað síðasta sólarhring og meiri gufa er að koma upp að sjá. Þenslan er kominn upp fyrir hæsta hámark og það er bara spurning um tíma hvenær jarðskorpan gefur sig í kvikuhólfinu,“ skrifaði Jón fyrir nokkrum dögum.

Hann bendir á að jarðskorpan á svæðinu sé orðin mjög heit og því breytt í eðli sínu undir þrýstingi á nokkurra kílómetra dýpi:

„Jarðskorpan á svæðinu er orðin mjög heit og því er hún teigjanlegri undir þeim þrýstingi sem er á um 5 km dýpi. Þar sem á því dýpi og vegna þrýstings, þá hagar grjót sér meira en eins og seigfljótandi vökvi eða gúmmí eins og sérfræðingar hafa lýst þessu.“

Jón segir einnig í annarri færslu að þróunin geti markað endalok smærri gosa og upphaf stærri atburða:

„Ég er búinn að gera útreikninga í huganum og þeir benda sterklega til þess að kafla sé mögulega lokið. Það er, litlum smágosum sem vara í stuttan tíma. Næsti kafli er væntanlega stórgos sem mögulega vara í lengri tíma.“

Að hans mati gæti slíkt gos staðið yfir í langan tíma, jafnvel mánuðum eða árum saman:

„Þá allt í að 6 til 24 mánuði í einu sem eldgos. Hvernig það þróast verður að koma í ljós með tímanum.“

Jón, sem er nokkuð umdeildur, hefur lýst sér sem borgaralegum vísindamanni og byggir mat sitt á lestri fjölda vísindagreina og eigin athugunum. Hér má sjá viðtal við hann sem Víkurfréttir tók árið 2024.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Nýjasta stjörnuparið nýtur sólarinnar á Ítalíu
Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

„Hér er því verið að nota íslenska fánann til glæpsamlegs athæfis“
Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Loka auglýsingu