Fallegt, einstakt og rúmgott einbýlishús við Vesturholt 16 í Hafnarfirði hefur verið sett á sölu.
Húsið stendur á eftirsóttum útsýnisstað á holtinu í enda rólegrar botnlangagötu og býður upp á bæði næði og fallegt útsýni yfir nágrennið.
Eignin er skráð alls 213,8 fermetrar að stærð og skiptist í þrjár hæðir auk bílskúrs. Neðsta hæð hússins er 67,5 fermetrar, aðalhæðin 73,4 fermetrar og risið 20,4 fermetrar. Þá fylgir eigninni 52,5 fermetra bílskúr, sem er í dag nýttur sem hluti af íbúðarrými hússins.
Húsið var byggt árið 1992 og hefur því staðið í rótgrónu og rólegu hverfi í yfir þrjá áratugi. Samkvæmt auglýsingu er ásett verð eignarinnar 134.900.000 krónur.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa


Komment