Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í nótt samkvæmt dagbók hennar.
Tilkynnt var um mann í annarlegu ástandi í verslun á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla og sjúkralið voru send á vettvang og var manninum í kjölfarið komið í viðeigandi úrræði að mati viðbragðsaðila.
Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni vegna gerðar og búnaðar ökutækis. Við nánari athugun vaknaði grunur um að viðkomandi væri jafnframt hér á landi án lögmætrar dvalar. Var hann vistaður í þágu rannsóknar málsins.
Í öðru tilviki var ökumaður stöðvaður sem reyndist ekki hafa ökuréttindi.
Tilkynnt var um umferðaróhapp þar sem ekið hafði verið á umferðarskilti. Tjónvaldur yfirgaf vettvang án þess að gera grein fyrir sér.
Lögreglu bárust einnig tvær kvartanir vegna hávaða.
Að lokum hafði lögregla afskipti af ökumanni vegna aksturs án gildra ökuréttinda. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er um ítrekað brot að ræða hjá sama aðila.


Komment