1
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

2
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

5
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

6
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

7
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

8
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

9
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

10
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

Til baka

Selfyssingur hótaði að drepa mann fyrir framan fjölskyldu hans

„Þið rænið börnum og misnotið þau“

Miðbær Selfoss
Miðbær SelfossMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Karlmaður frá Selfossi hefur verið sakfelldur fyrir umferðar- og siglingarlagabrot og fyrir að hóta manni. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands.

Sendi maðurinn öðrum manni þrjár hótanir í gegnum tölvupóst árið 2022 og bárust allir póstarnir sama dag.

Tölvupóstarnir þrír

Kl. 19:11: „Þið eruð þjófar og þið rænið börnum og misnotið þau, þið eruð sjúkir fucking barnaníðingar…. Ég mun finna ykkur í helvíti“

Kl. 19:12: „Ég mun persónulega finna þig og drepa þig fyrir framan fjölskylduna þína ef þú nokkurn tímann aftur rukkar mig um svo mikið sem eina krónu.“

Kl. 19:17: „Það eru bara tveir með þínu nafni í símaskránni, ég er búinn að taka skjáskot… Ef þú innheimtir meiri pening frá mér á meðan þið haldið barninu mínu læstu inni á sjúkrahúsi… Mun ég koma og drepa þig fyrir framan fucking fjölskyldu þína.. Ég mun birtast einn daginn og brjóta hvert bein í andlitinu á þér fyrir framan börnin þín þangað til heilinn á þér springur á þau. Barnaníðings ógeðið þitt!!!!“

Þá var hann einnig dæmdur fyrir umferðar- og siglingarlagabrot og brot gegn lögum um áhafnir skipa með því að hafa, sunnudaginn 16. júní 2024, stjórnað hjólabát, sem er þiljað farþegaskip, á Jökulsárlóni og ekið farþegaskipinu þaðan upp á land og að landgöngupramma á afmörkuðu athafnarsvæði á landi, óhæfur til að stjórna hjólabátnum örugglega og óhæfur til að rækja starfann á fullnægjandi hátt vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Enn fremur með því að hafa umrætt sinn haldið úr höfn án þess að hafa, sem skipstjóri farþegaskipsins, gætt að því að hann sjálfur væri lögskráður á skipið.

Maðurinn játaði brot sín og var dæmdur í 30 daga fangelsi og er dómurinn skilorðsbundinn til tveggja ára. Hann þarf að greiða 530.000 krónur í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa en sæti ella fangelsi í 28 daga.

Þá var hann sviptur ökurétti í 3 ár og skipstjórnarréttindum í þrjá mánuði.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Laxness slær í gegn hjá The Guardian
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Helgi Ólafsson er fallinn frá
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi
Heimur

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið
Menning

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við
Innlent

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag
Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við
Innlent

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag
Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

Loka auglýsingu