1
Innlent

Ris og fall Kleina

2
Innlent

Fleiri konur stíga fram vegna Kleina

3
Innlent

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag

4
Peningar

Þungur rekstur Kleina bakvið glansmyndina

5
Minning

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir er látin

6
Fólk

Selja hús sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

7
Innlent

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki

8
Innlent

Átta Kínverjar ákærðir

9
Fólk

Fyrrum þingmaður kominn með nýja vinnu

10
Fólk

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús

Til baka

Ert þú sammála ákvörðun RÚV um að taka ekki þátt í Eurovision?

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri
Mynd: RÚV/Ragnar Visage

Í gær tilkynnti RÚV um að Ísland muni ekki taka þátt í Eurovision 2026, sem fer fram í Austurríki.

Mikil umræða hefur ríkt í íslensku samfélagi undanfarin ár vegna þátttöku Ísrael í keppninni. Hafa sumir talið það algjörlega óásættanlegt að þjóðin fái að taka þátt í ljósi þjóðarmorðs á Gaza. Aðrir telja að málið sé pólitískt og ekki eigi að blanda Eurovision við slíkt.

Ísland er því fimmta þjóðin sem hefur dregið sig út keppni en Hollendingar, Spánverjar, Írar og Slóvenar höfðu áður tilkynnt um slíkt.

En Mannlíf spyr lesendur sína: Ert þú sammála ákvörðun RÚV um að taka ekki þátt í Eurovision?

Ert þú sammála ákvörðun RÚV um að taka ekki þátt í Eurovision?

Yfirlýsing framkvæmdarstjórnar RÚV um málið

Ríkisútvarpið hefur ákveðið að taka ekki þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Vínarborg í Austurríki á næsta ári. Þátttaka ísraelska ríkissjónvarpsins, KAN, í keppninni hefur að undanförnu valdið óeiningu, bæði á meðal aðildarstöðva Samtaka evrópskra útvarpsstöðva, EBU, og almennings. Þátttaka KAN var tekin til ítarlegrar umræðu á fundum EBU fyrr á þessu ári, fyrst í London í sumar og í Genf í síðustu viku. Á fundinum í Genf samþykkti mikill meirihluti aðildarstöðva EBU að ýmsar breytingar sem gerðar hafa verið á reglum og framkvæmd keppninnar væru fullnægjandi og því kom ekki til atkvæðagreiðslu um þátttöku KAN í keppninni.

Útvarpsstjóri gerði grein fyrir því á fundinum í Genf að þrátt fyrir að breytingarnar kæmu til móts við margar af þeim athugasemdum sem fulltrúar RÚV hefðu gert á ýmsum stigum EBU-samstarfsins síðustu ár væru enn efasemdir að mati RÚV um að þær dygðu til. Ítrekað hefði komið fram að hagsmunaaðilar hér á landi, til dæmis samtök listamanna, og íslenskur almenningur væri andvígur þátttöku í keppninni. Þá hefði stjórn RÚV óskað eftir því við EBU að KAN yrði vikið úr keppninni með hliðsjón af fordæmum. Málið væri flókið úrlausnar og hefði nú þegar skaðað orðspor keppninnar og EBU. Mikilvægt væri að finna lausn fyrir alla hlutaðeigandi.

Ljóst er miðað við opinbera umræðu hér á landi og viðbrögð við ákvörðun EBU sem tekin var í síðustu viku að hvorki mun ríkja gleði né friður um þátttöku RÚV í Eurovision. Það er því niðurstaða RÚV að tilkynna EBU um það í dag að RÚV taki ekki þátt í Eurovision á næsta ári. Söngvakeppnin og Eurovision hafa ávallt haft það markmið að sameina íslensku þjóðina en nú er ljóst að því markmiði verður ekki náð og á þeim dagskrárlegu forsendum er þessi ákvörðun tekin. Ekki liggur fyrir ákvörðun um hvort haldin verður söngvakeppni á vegum RÚV á næsta ári. Verið er að meta fyrirliggjandi kosti í stöðunni og verður ákvörðun um það kynnt þegar hún liggur fyrir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals
Innlent

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals

Borgin reynir að stuðla að meira öryggi
Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?
Skoðun

Daníel Andri Eggertsson

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Fjórir Kínverjar til viðbótar ákærðir
Innlent

Fjórir Kínverjar til viðbótar ákærðir

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður
Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“
Myndir
Fólk

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús
Myndir
Fólk

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús

Felix Ólafsson er fallinn frá
Minning

Felix Ólafsson er fallinn frá

Lögreglan gerði manni tilboð
Innlent

Lögreglan gerði manni tilboð

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki
Innlent

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag
Innlent

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag

Flutti inn lélegt kókaín frá Amsterdam
Innlent

Flutti inn lélegt kókaín frá Amsterdam

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir er látin
Minning

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir er látin

Innlent

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals
Innlent

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals

Borgin reynir að stuðla að meira öryggi
Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag
Innlent

Kleini mun senda frá sér yfirlýsingu um „sakleysi“ í dag

Fjórir Kínverjar til viðbótar ákærðir
Innlent

Fjórir Kínverjar til viðbótar ákærðir

Lögreglan gerði manni tilboð
Innlent

Lögreglan gerði manni tilboð

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki
Innlent

Matvælastofnun varar við Íslandsnaut ungnautahakki

Loka auglýsingu