
Fjórtán ára drengur skaut mann á þrítugsaldri til bana á leikvelli í Svíþjóð í því sem lýst hefur verið sem hreinni aftöku. Nokkrum vikum síðar var hann á leið í annað morðverkefni en var stöðvaður á síðustu stundu. Þetta kemur fram í frétt Aftonbladet.
Atvikið átti sér stað 20. september í fyrra í Ektorp-hverfi í Norrköping. Fórnarlambið sat á bekk á leikvelli þegar það var skotið til bana. Talið er að annar 14 ára drengur hafi fengið unglinginn til verksins.
Vegna ungs aldurs þeirra var haldin sérstök sönnunarfærsla fyrir dómi, þar sem þeir eru ekki sakhæfir til refsingar. Héraðsdómur Norrköping hefur þó komist að þeirri niðurstöðu að sá sem skaut úr byssunni sé sekur um morð. Auk þess var hann talinn sekur um stórfelld vopnalagabrot, íkveikju og fíkniefnabrot.
Drengurinn sem fékk hann til verksins er talinn sekur um hlutdeild í morðinu, meðal annars fyrir að hafa tekið þátt í skipulagningu og ráðið hann til verksins.
Höfðu áhyggjur af drengnum
Morðið var skipulagt og hefur drengurinn játað verknaðinn. Nokkrum mánuðum áður höfðu félagsþjónustuyfirvöld lýst áhyggjum af hegðun hans, þar sem hann var farinn að selja fíkniefni og umgangast nýjan félagsskap sem vakti ugg foreldra hans. Sumarið 2025 var hann sagður hafa verið fenginn til að selja fíkniefni gegn greiðslu.
Fjórtán ára drengur skaut mann á þrítugsaldri til bana á leikvelli í Svíþjóð í því sem lýst hefur verið sem hreinni aftöku. Nokkrum vikum síðar var hann á leið í annað morðverkefni en var stöðvaður á síðustu stundu.
Málinu lauk þó ekki þar. Þremur vikum síðar var drengurinn kominn með nýtt verkefni, að fremja annað morð, að þessu sinni í Linköping. Myndbandsupptökur sýna hann ganga inn í líkamsræktarstöð, grímuklæddan og vopnaðan. Starfsfólk tók eftir grunsamlegri hegðun hans og vísaði honum út áður en hann náði að framkvæma verknaðinn. Dómstóll taldi hann sekan um tilraun til manndráps.
Samkvæmt lögreglu fékk drengurinn um 100 þúsund sænskar krónur fyrir morðið, sem hann eyddi í fíkniefni. Rannsóknarlögreglumaðurinn Jan Staaf hefur sagt að fjárhagslegur þrýstingur hafi ýtt honum áfram í frekari glæpi og að hann hafi verið dreginn inn í vítahring afbrota.

Komment