
Mary Trump, frænka Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, segir ákvörðun hans um að ráðast á Íran byggjast á einni ástæðu, og hún hafi ekkert með hagsmuni írönsku þjóðarinnar að gera.
Árásirnar eru hluti af hernaðaraðgerð sem kölluð hefur verið Operation Epic Fury, þar sem bandaríski herinn hefur, samkvæmt Hvíta húsinu, beitt „yfirgnæfandi herafla“ gegn skotmörkum í Íran undir „djarfri stjórn“ forsetans.
Samkvæmt fréttum hafa árásirnar þegar haft alvarlegar afleiðingar. Talið er að minnsta kosti 787 manns hafi látist í Íran, þar á meðal 165 skólastúlkur. Þá féll einnig æðsti leiðtogi landsins, Ali Khamenei, í árásunum.
Íran brást við með röð víðtækra dróna- og flugskeytaárása yfir Persaflóa, sem beindust að þjóðum eins og Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Sádi-Arabíu, Barein, Jórdaníu, Óman, Katar, Kýpur og Ísrael. Mary Trump, sem er bróðurdóttir forsetans, Fred Trump Jr. heitins, segir hins vegar að raunveruleg ástæða árásarinnar sé allt önnur en stjórnvöld gefa til kynna.
Í myndbandi á YouTube-rás sinni Mary Trump Media, sem ber titilinn Trump Declares War to Save Himself, segir hún að forsetinn hafi „engan áhuga“ á írönsku þjóðinni.
„Íranska þjóðin hefur þjáðst lengi undir harðri og kúgandi trúarlegri einræðisstjórn. Hún á skilið frelsi og rétt til að ákveða sjálf hvernig hún vill stjórna landi sínu,“ segir Mary Trump.
„En maðurinn sem er að sprengja land þeirra hefur engan áhuga á þeim og enga áætlun um að skapa aðstæður þar sem þau geta orðið frjáls.“
Hún segir jafnframt að Trump hafi aldrei haft skýra stefnu heldur valdi einfaldlega ringulreið og láti aðra taka til eftir sig.
„Fyrir Donald er aðeins ein ástæða og hún ein: hann er í vandræðum og veit það,“ segir hún. „Þetta snýst ekki bara um að beina athyglinni annað. Þetta snýst um að koma í veg fyrir að heimurinn sjái hversu óhæfur og spilltur hann er.“
Trump hafi því, að hennar mati, dregið Bandaríkin inn í stríð að beiðni Sádi-Arabíu og Ísraels, en það hefði ekki verið nóg nema það þjónaði einnig hans eigin hagsmunum.
Ísraelski varnarmálaráðherrann Israel Katz hefur lýst árásunum sem „fyrirbyggjandi aðgerð“ til að fjarlægja ógnir við Ísrael. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að Bandaríkin hefðu vitað af áformum Ísraels og brugðist við til að fyrirbyggja hugsanlega árás Írans.
Trump sjálfur sagði í færslu á Truth Social að „ógnandi aðgerðir Írans setji Bandaríkin, hermenn okkar og bandamenn í hættu“.
Hann hélt því einnig fram að Íran væri að þróa langdrægar eldflaugar sem gætu ógnað Evrópu og jafnvel Bandaríkjunum. Samkvæmt mati bandarísku varnarmálagreiningarstofnunarinnar (DIA), sem CBS News hefur greint frá, er þó ólíklegt að Íran hafi eldflaugar sem nái til Bandaríkjanna fyrr en árið 2035.

Komment