1
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

2
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

3
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

4
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

5
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

6
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

7
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

8
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

9
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

10
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Til baka

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi

Dúfa
Mynd: Víkingur

Matvælastofnun hafa undanfarnar vikur borist fjölmargar ábendingar um veika og dauða villta fugla víða um land. Við rannsókn á sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Norðurlandi, Suðvesturlandi og Suðausturlandi frá miðjum september fram í október greindist skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N5. Þetta staðfesti Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Sýni frá öðrum landshlutum bíða niðurstöðu greiningar.

Sýnataka úr veikum eða dauðum villtum fuglum er liður í stöðugri vöktun Matvælastofnunar á fuglainflúensu hér á landi. Um er að ræða fyrstu greiningar skæðrar fuglainflúensu hér á landi síðan í vor. Síðast greindist fuglainflúensa í heiðagæs við Höfn í Hornafirði í apríl 2026.

Fyrstu jákvæðu fuglainflúensusýnin í haust voru úr fuglum sem fundust á Blönduósi, Skagaströnd og við Sauðárkrók um miðjan september. Um var að ræða hettumáf, skúm, tvo svartbaka og sílamáf. Í kjölfarið bárust fleiri ábendingar um veika og dauða fugla. Fjórir fuglar á Húsavík reyndust smitaðir og auk þess greindist smit í fuglum sem fundust við Jökulsárlón á Suðausturlandi. Nýjustu niðurstöður sýna jafnframt að átta máfar sem fundust dauðir í Sandgerði á Reykjanesi reyndust einnig smitaðir af skæðri fuglainflúensu af gerðinni H5N5.

Tilkynningum um veika og dauða fugla hefur fjölgað að undanförnu og bendir það til þess að veiran sé farin að dreifast meðal villtra fugla hér á landi á ný. Matvælastofnun fylgist náið með þróuninni með viðeigandi sýnatökum. Fleiri sýni eru nú til rannsóknar og niðurstaðna þeirra er að vænta innan skamms.

Frá haustinu 2025 hafa bæði afbrigði skæðrar fuglainflúensu, H5N5 og H5N1, greinst hér á landi. H5N5 hefur þó verið algengara afbrigðið í villtum fuglum á þessu tímabili. Sýnin sem nú hafa greinst verða send til frekari erfðagreiningar (raðgreiningar) til að afla nánari upplýsinga um uppruna og skyldleika veirunnar.

Á þessu stigi er lítið vitað um umfang útbreiðslunnar, en greiningarnar sýna að veiran er til staðar á Norðurlandi, Suðvesturlandi og Suðausturlandi. Matvælastofnun mun áfram fylgjast náið með stöðunni og birta upplýsingar eftir því sem nýjar niðurstöður berast.

Óvissustig er áfram í gildi vegna aukinnar smithættu fyrir alifugla og aðra fugla í haldi frá villtum fuglum.

Fuglaeigendur hvattir til árvekni og öflugra sóttvarna

Fjölgun á fuglainflúensugreiningum í villtum fuglum undirstrika mikilvægi þess að alifuglabændur og aðrir fuglaeigendur séu vel á verði og viðhafi öflugar sóttvarnir til að draga úr hættu á að smit berist frá villtum fuglum í fugla í haldi.

Matvælastofnun hefur upplýstalifuglabændur um stöðuna og leiðbeint um hertar sóttvarnir. Aðrir fuglaeigendur eru jafnframt hvattir til að tryggja öflugar smitvarnir og fylgjast vel með heilsufari fugla sinna. Tilkynna skal tafarlaust til Matvælastofnunar ef vart verður um sjúkdómseinkenni í fuglum eða óvenjuleg dauðsföll.

Almenningur hvattur til að tilkynna veika og dauða villta fugla

Matvælastofnun hvetur almenning áfram til að tilkynna stofnuninni um veika og dauða villta fugla og villt spendýr sem finnast, nema það sé augljóst að dýrið hafi drepist af slysförum. Slíkar tilkynningar eru afar mikilvægar fyrir vöktun stofnunarinnar á útbreiðslu fuglainflúensu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada
Innlent

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð
Myndir
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Marga Ingeborg Thome er látin
Minning

Marga Ingeborg Thome er látin

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt
Innlent

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Fyrirtækið sérhæfir sig meðal annars í innflutningi, heildsölu og smásölu á bifreiðum
Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada
Innlent

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi
Innlent

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt
Innlent

Síminn undir stýri var minnsta vandamálið í nótt

Loka auglýsingu