
Leikarinn og ljóðskáldið Karl Ágúst Úlfsson birti í gær ljóð sem hann samdi árið 1978 en ljóðið ber nafnð EKKI LÝGUR MOGGINN.
Ljóðið birti Karl Ágúst á Facebook en færslan sló heldur betur í gegn en þegar þetta er ritað hafa yfir 300 manns líkað við hana. Í færslunni segist leikarinn ástsæli hafa verið búinn að gleyma ljóðinu en að af einhverri ástæðu hefði minningin vaknað. Hér fyrir neðan má lesa færslu Karls Ágústs og ljóðið sem sló í gegn.
„EKKI LÝGUR MOGGINN
er titillinn á ljóðinu sem ég orti 1978. Ég var eiginlega búinn að steingleyma þvi. Núna vaknaði þessi minning hjá mér allt í einu. Hvernig skyldi standa á því?
Ég hefi unnið helgar, dag og nóttu
og hendur mínar unnu mörgum gagn -
þær fyrir aðra fisk á miðin sóttu
og fengu öðrum hús og nýjan vagn.
En þegar hlutur hvers og eins er ausinn
og aðrir hljóta gimstein, ég fæ gler,
þá vef ég Mogganum vandlega um hausinn
og veit þá engan mun á þeim og mér.
Frá útlöndum ég heyri um gerðir grimmar
er garmar auðsins fremja þjóðarmorð -
er kvalaópum blandast drunur dimmar
og dreyri bræðra minna litar storð.
En þegar sunnanblærinn strýkur burstir
og ber mér neyðarkall um líkn og stoð,
þá treð ég Mogganum hart og þétt í hlustir
og heyri ei lengur samviskunnar boð.
Ég hugleiði hvar líknar sé að leita,
hvort líf mitt hafi um eilífð glatast mér -
hvort ég sé ekki fær að bylta og breyta
og brjóta af mér klafann sem ég ber?
En þegar lausnarstríðið kallar kraft minn
og krefst ég taki undir frelsisóð,
þá treð ég Mogganum kirfilega í kjaftinn
og kæfi sérhvert umvöndunarhljóð.“

Komment