1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

4
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

5
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

6
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

7
Minning

Megas er látinn

8
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

9
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

10
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Til baka

Lögreglan leiðrétti misskilning í Árbænum

Ártúnsholt Höfði Höfðahverfi
Ártúnholts í ÁrbænumSex gistu fangageymslur í nótt.
Mynd: Reykjavíkurborg

Fjöldi verkefna kom inn á borð lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í gærkvöldi, þar sem fjöldi mála tengdist bæði umferðarlagabrotum og ofbeldisbrotum.

Líkamsárás var tilkynnt í verslunarmiðstöð í Reykjavík. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um meiðsl eða aðdraganda árásarinnar að svo stöddu.

Í miðbænum var ökumaður kærður fyrir svigakstur og ónauðsynlega hljóðmerkjagjöf. Við nánari athugun kom í ljós að viðkomandi var undir áhrifum fíkniefna og var hann í framhaldinu handtekinn. Þá var annar ökumaður stöðvaður í sama hverfi eftir að hafa ekið gegn einstefnu; reyndist hann vera ölvaður og var einnig handtekinn. Að auki var aðili handtekinn í hverfinu fyrir brot gegn lögreglusamþykkt.

Í Reykjavík var ökumaður handtekinn grunaður um ölvunarakstur og annar aðili var handtekinn fyrir vopnalagabrot og hótanir.

Í Garðabæ voru nokkur alvarleg mál til meðferðar. Þar var ökumaður handtekinn fyrir fíkniefna-, ölvunar- og sviptingarakstur. Þá var annar aðili handtekinn grunaður um ölvunar- og fíkniefnaakstur, auk ráns, líkamsárásar og hótana. Sá hafði jafnframt tekið strætisvagn ófrjálsri hendi. Enn fremur var þriðji aðilinn handtekinn fyrir ölvun á almannafæri og fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu, en hann réðst í kjölfarið að lögreglumönnum með ofbeldi og hótunum.

Í Hafnarfirði var ökumaður handtekinn fyrir fíkniefnaakstur.

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir akstur sviptir ökurétti, annars vegar í Breiðholti og hins vegar í Árbænum

Eldur kviknaði í bifreið í Árbæ, en slökkvilið náði að ráða niðurlögum eldsins. Bifreiðin var í kjölfarið fjarlægð af vettvangi.

Að lokum barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í Árbænum, en við nánari athugun reyndist þar vera á ferðinni blaðberi og ekki ástæða til frekari aðgerða.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu