1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

Gerir stólpagrín að kommentakerfinu

Þorgerður Katrín snýr við taflinu og hæðist að lyklaborðsriddurum. „Ég var reyndar í brjóstahaldara.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður KatrínLætur ekki að sér hæða.
Mynd: AFP

„Þetta er erfitt líf enda eldist hú neins og banani, mikið lagt á herðar Kristjáns,“ valdi Sævar Karlsson að lýsa yfir um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og eiginmann hennar, Kristján Arason, fyrir alþjóð.

Þorgerður hefur nú ákveðið að svara honum og öðrum sem hafa ávarpað hana á Facebook, með myndbandi þar sem hún bregst við kommentakerfinu.

„Þetta er ein mesta móðgun sem ég hef fengið á samfélagsmiðlunum núna síðustu daga. Að líkja mér við banana. Það vita allir sem mig þekkja að ég þoli ekki banana. Ég hefði frekar viljað „mygluð appelsína“ eða eitthvað, en ekki banani. Þannig að ég tek þetta mjög nærri mér,“ svarar Þorgerður.

„Þú ert landráðatrunta, það á að loka þig inn í búri,“ skrifar Guðmundur Max nokkur á Facebook. „Búr? Mér líður ekki vel inni í búri og það bara eiga allir að vera frjálsir,“ svarar hún.

„Meiri orgían þetta stjórnarsamstarf,“ segir Þorsteinn Erlingsson, ekki skáld.

„Það er mjög gaman hjá okkur Ingu og Kristrúnu. Það bara nokkuð skemmtileg orgía þar í gangi,“ svarar Þorgerður

„Algerlega ósammála því, en ég sé að þú ert kominn með fimmtíu og eitthvað læk, allt frá körlum,“ segir hún við Eli Uno nokkurn, sem hafði hellt úr skálum visku sinnar: „Ég er farinn að halda að konur séu óhæfar í stjórnmálum … skemma meira en þær laga“.

Einn þeirra, Ægir Máni Bjarnason, gengur lengra en flestir. „Hún er stríðsglæpamaður og ekkert annað. Vonandi fær hún dauðarefsinguna,“ lýsir hann fjálglega yfir.

„Ég er nú á móti dauðarefsingum, bara svona í prinsippinu,“ svarar Þorgerður.

„Setja þig í gapastokk! Þú hefðir gott af því,“ segir Sigurður Valdimar Steinþórsson.

„Nei, hann hentar mér ekki,“ svarar Þorgerður. „Ekki spennt fyrir honum.“

Theodór Hertervig lætur þau fleygu orð falla: „Út með gæruna.“

„Gæruna? Íslenska gæran er mjög fín. Ég styð hana.“

Anna Fia spyr Þorgerði beint út: „Þorgerður Katrín, hvenær ætlar þú að hætta að vinna hjá ríkisstjórninni?“

„Ég var nú kosin til fjögurra ára,“ svarar Þorgerður. „Þrjú ár eftir. Við sjáum til hvort við fáum ekki bara endurkjör.“

„Ertu ekki í brjóstahaldara hjá Gísla Marteini,“ spyr einn með bíl í prófílmynd.

„Ég var reyndar í brjóstahaldara hjá Gísla Marteini. En hann var hlýralaus haldari.“

„Farðu i frí. Plís, segir Karlsson nokkur og Þorgerður þakkar honum.

„Þetta finnst mér nú vera gott ráð,“ segir hún og lýsir því að hún sé einmitt í Þýskalandi á leið í helgarfrí.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Minnsta reikistjarna sólkerfisins minnkar og minnkar
Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku
Myndband
Heimur

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku

Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð“
Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Loka auglýsingu