1
Peningar

„Nablinn“ hefur fyrirtækjarekstur

2
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

3
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue ákærð

4
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

5
Menning

Jón Adólf með eina óvenjulegustu listasýningu Kaupmannahafnar

6
Pólitík

Sólveig Anna gagnrýnir Ingu Sæland harðlega

7
Pólitík

Feminísk fötlunarhreyfing styrkt um milljónir

8
Innlent

Verslun í Laugardalnum rænd

9
Innlent

Reykvíkingur faldi tíu þúsund evrur í skóm

10
Heimur

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð

Til baka

Glowie og Guðlaugur selja græna íbúð á Gufunesi

Svansvottuð með geggjuðu sjávarútsýni

Glowie8
JöfursbásLitríkt er það
Mynd: fasteignir.visir.is

Söngkonan Sara Pétursdóttir, betur þekkt sem Glowie, og maki hennar Guðlaugur Andri Eyþórsson, klippari og ljósmyndari, hafa sett til sölu þriggja herbergja íbúð sína í vistvænu íbúðahverfi í Gufunesi. Söluverð er 53.412.464 kr.

Um er að ræða 55,4 fermetra íbúð á annarri hæð í Jöfursbás 11E, íbúð 203, í húsi sem nefnist Sif. Húsið er hluti af byggð Þorpsins vistfélags, þar sem reist hafa verið Svansvottaðar íbúðir með áherslu á hagkvæmni, grænar lausnir og sjálfbært umhverfi fyrir ungt fólk.

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, opið eldhús og stofu, auk baðherbergis með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Úr stofu er útgengi á svalir sem snúa í suðvestur og njóta góðrar birtu. Eldhúsið er í opnu rými með innréttingu sem nær upp í loft og spanhelluborði, en svefnherbergin eru bæði með fataskápum og parketi á gólfi.

Sérstaða eignarinnar felst meðal annars í þeim kvöðum sem fylgja byggðinni. Kaupendur þurfa að vera á aldrinum 18 til 40 ára og hámarks söluverð eignarinnar fylgir vísitölu innan hverfisins, sem þýðir að ekki er heimilt að yfirbjóða ásett verð. Þá eru gæludýr velkomin í Jöfursbás.

Byggðin í Jöfursbási samanstendur af 137 íbúðum í fimm húsum, á þremur til fimm hæðum, sem raðað er um miðlægt torg og garðrými. Hönnun leggur áherslu á góða rýmisnýtingu, skjólgóð útisvæði og algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Frá svæðinu er útsýni yfir Geldinganes og Viðey, auk þess sem göngu- og hjólastígar liggja meðfram strandlengjunni og tengja hverfið við Grafarvog.

Íbúðarhúsin eru verksmiðjuframleidd úr forsteyptum einingum og byggð með það að markmiði að tryggja gæði, endingu og vistvænar lausnir. Í tengslum við byggðina eru einnig matjurtagarðar á landi Reykjavíkurborgar sem íbúar geta nýtt til ræktunar.

Deiliskipulag Gufuness byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofanna jvantspijker og Felixx, sem unnu alþjóðlega hugmyndasamkeppni árið 2016. Þar er Gufunes lýst sem „ventli“ fyrir ungt fólk sem sækist eftir borgarbrag, grósku og samfélagslegri nálgun frekar en hefðbundnum úthverfum.

Glowie9
Mynd: fasteignir.visir.is
Glowie6
Mynd: fasteignir.visir.is
Glowie5
Mynd: fasteignir.visir.is
Glowie10
Mynd: fasteignir.visir.is
glowie4
Mynd: fasteignir.visir.is
glowie3
Mynd: fasteignir.visir.is
glowie2
Mynd: fasteignir.visir.is
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja
Innlent

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja

Lögreglan biður fólk að varst þessa tölvupóst
Oddviti Miðflokksins vill loka MAST
Pólitík

Oddviti Miðflokksins vill loka MAST

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“
Pólitík

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“

Handtekinn eftir hættulega eftirför á Tenerife
Heimur

Handtekinn eftir hættulega eftirför á Tenerife

Íran hótar harðari árásum eftir skemmdir á orkuinnviðum
Heimur

Íran hótar harðari árásum eftir skemmdir á orkuinnviðum

Ellefu ára drengur ákærður fyrir að myrða litla bróður sinn
Heimur

Ellefu ára drengur ákærður fyrir að myrða litla bróður sinn

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

Val Kilmer „leikur“ í nýrri kvikmynd
Heimur

Val Kilmer „leikur“ í nýrri kvikmynd

Gary Glitter sagður „á síðasta snúningi“ í fangelsinu
Heimur

Gary Glitter sagður „á síðasta snúningi“ í fangelsinu

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi
Innlent

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu
Myndir
Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð
Heimur

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð

Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu
Myndir
Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu

Húsið var byggt árið 1969
Vélmennahúsið í Árbænum sett á sölu
Myndir
Fólk

Vélmennahúsið í Árbænum sett á sölu

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús
Myndir
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

Selja dýrasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja dýrasta parhús landsins

Ofurstjarna dáðist að íslenskri náttúru
Myndir
Fólk

Ofurstjarna dáðist að íslenskri náttúru

„Hvenær ætlum við að vakna upp af dáleiðslunni?”
Myndband
Fólk

„Hvenær ætlum við að vakna upp af dáleiðslunni?”

Loka auglýsingu