Valentin Jemeljanov hefur verið dæmdur í fangelsi af Héraðsdómi Reykjaness.
Hann var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa, laugardaginn 22. nóvember 2025, staðið að innflutningi á samtals 3000 ml af kókaíni á vökvaformi, með styrkleika 53-56%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands sem farþegi með flugi frá Riga, Lettlandi, til Keflavíkurflugvallar, falið í fjórum flöskum í farangri ákærða.
Jemeljanov, sem er frá Litháen, játaði brot sitt en hann hefur ekki gerst brotlegur áður. Ekki er talið að hann hafi tekið þátt í að skipuleggja innflutninginn til landsins.
Hann var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi og er dómurinn óskilorðsbundinn. Þá þarf hann að greiða 1.471.455 krónur í sakarkostnað.

Komment