
Stjórn Fisksins, félags guðfræði- og trúarbragðafræðinema við Háskóla Íslands, hefur lýst yfir áhyggjum af opinberri umræðu undanfarinna daga um stöðu hinsegin fólks innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.
Í yfirlýsingu sem birt var á samfélagsmiðlum segir að félagið telji mikilvægt að kirkjuleiðtogar sýni í verki þau gildi sem kristin trú byggir á.
„Stjórn Fisksins, félags guðfræði- og trúarbragðafræðinema við Háskóla Íslands, finnur sig knúna til þess að lýsa yfir þungum áhyggjum af opinberri umræðu undanfarinna daga er snýr að stöðu hinsegin fólks innan Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi,“ segir í færslunni.
Stjórnin hvetur leiðtoga allra kirkjudeilda á Íslandi til að leggja áherslu á kærleika og umburðarlyndi í samskiptum sínum og starfi.
„Í anda kristinnar trúar, sem einkennist af kærleika og umburðarlyndi, hvetur stjórn Fisksins leiðtoga allra kirkjudeilda landsins til þess að sýna þessi gildi kristinnar trúar í verki.“
Í yfirlýsingunni er einnig lagt áherslu á að kirkjan eigi að vera opin öllum, óháð bakgrunni eða sjálfsmynd.
„Mikilvægt er að allar manneskjur, óháð trú, kynþætti, þjóðernisuppruna, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu séu velkomnar innan kirkjunnar.“
Stjórn félagsins segir jafnframt að allir eigi að geta leitað til kirkjuleiðtoga eftir stuðningi og leiðsögn, bæði í opinberri umræðu og í persónulegum samtölum.
„Jesús Kristur stóð með þeim sem voru jaðarsett í samfélaginu í öllu sem hann gerði og sagði. Undir öllum kringumstæðum ætti kirkjan að gæta að öryggi og virðingu hverrar manneskju.“

Komment