
Harrison Ford hlaut standandi lófaklapp í gær þegar hann tók við SAG-AFTRA-verðlaununum fyrir ævistarfið.
„Er þetta ekki pínu snemmt?“ grínaðist Ford og bætti við að það væri „pínu skrýtið að fá verðlaun fyrir ævistarf á miðjum ferli“.
Hinn 83 ára gamli Ford er einn tekjuhæsti leikari kvikmyndasögunnar eftir að hann sló í gegn á heimsvísu í hlutverki Han Solo í Star Wars-myndunum, en ferill hans var síðan rækilega festur í sessi með Indiana Jones-myndunum.
Ford barðist við tárin þegar hann þakkaði samferðafólki sínu í greininni, leikurum, handritshöfundum og leikstjórum. Hann sagðist hafa „fundið köllun. Líf í frásögn sagna. Sjálfsmynd í því að þykjast vera aðrir.“
„Þótt við séum öll á ólíkum stöðum í lífi okkar og ferli hér í salnum eigum við eitt sameiginlegt,“ sagði Ford. „Við deilum þeim forréttindum að vinna í heimi hugmynda, samkenndar og ímyndunarafls. Vegna þess hef ég kynnst sjálfum mér.“
Ford lagði áherslu á að hann hefði ekki orðið frægur á einni nóttu. Fyrstu 15 ár ferils síns hafi hann hoppað á milli leiklistar og smíðavinnu áður en hann fékk raunverulegt tækifæri í kvikmyndum.
Hann þakkaði sérstaklega kvikmyndaframleiðandanum og umsjónamanni leikaravals, Fred Roos og langvarandi umboðsmanni sínum, Pat McQueeney, sem hann sagði hafa skipt sköpum fyrir feril sinn. „Þeir eru ekki lengur meðal okkar, en mér finnst mikilvægt að minnast þeirra núna. Ég finn nærveru þeirra hér í kvöld. Þeir hefðu verið ánægðir með mig,“ sagði Ford.
Heiðurinn frá SAG-AFTRA er einn af nokkrum verðlaunum fyrir ævistarf sem Ford hefur hlotið á sex áratuga löngum ferli sínum, sem einkennist af tveimur stærstu kvikmyndaseríum Hollywood. Áður en hann steig á svið var sýnd samantekt úr ólíkum hlutverkum hans í kvikmyndum.
Verðlaunin voru afhent af leikaranum Woody Harrelson, sem lofaði fjölbreyttan feril Ford og kallaði hann „tímalausa ameríska þjóðargersemi“. „Það er of mikið af mér í þessari hyllingu til Harrison, en ég er leikari, hverju bjóstu við?“ grínaðist Harrelson og rifjaði upp hvernig vinátta þeirra hófst á sushi-stað og endaði með því að þeir hlógu linnulaust í þrjár mínútur.
„Þetta eru æviafrekaverðlaun og hann hefur sannarlega lifað fullu lífi,“ bætti Harrelson við.
Ford sýnir engin merki um að hægja á sér. Hann fer með hlutverk sálfræðingsins Paul Rhoades í Apple TV-seríunni Shrinking, sem skilaði honum fyrstu Emmy-tilnefningu ferilsins í fyrra. Hann lék einnig í 1923 og birtist nýverið í fyrstu Marvel-mynd sinni, Captain America: Brave New World.
„Harrison telur að það að vinna meira sé mótefni gegn öldrun,“ sagði Harrelson. Ford sneri nýverið aftur í eitt þekktasta hlutverk sitt í myndinni Indiana Jones and the Dial of Destiny.
Þrátt fyrir gríðarlegan árangur hefur Ford aldrei unnið stór verðlaun fyrir leik. Æviafrekaverðlaunin eru þau fyrstu sem hann hlýtur frá leikarasambandinu. Hann var tilnefndur í fyrra fyrir hlutverk sitt í Shrinking en laut í lægra haldi fyrir Martin Short í Only Murders in the Building.
Ford sagðist vera „mjög auðmjúkur“ yfir því að vera heiðraður í sal fullum af leikurum, „mörgum sem eru hér vegna þess að þeir hafa verið tilnefndir fyrir stórkostleg verk, á meðan ég er hér til að fá verðlaun fyrir að vera á lífi.“
„Stundum búum við til afþreyingu. Stundum búum við til list. Og stundum erum við svo heppin að gera hvort tveggja í einu,“ sagði hann.
Æviafrekaverðlaun SAG-AFTRA eru æðsti heiður hátíðarinnar og eru veitt leikurum sem hafa stuðlað að „æðstu hugsjónum leiklistar“. Með verðlaununum bætist Ford í hóp nafntogaðra leikara á borð við Jane Fonda, Barbru Streisand, Morgan Freeman og Robert De Niro.
SAG-AFTRA lýsti Ford sem „einum af langlífustu aðalleikurum kvikmyndasögunnar“ en frammistaða hans „er orðin samofin menningu okkar,“ í tilkynningu í desember þar sem greint var frá heiðrinum.

Komment