1
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

2
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

3
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

4
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

5
Minning

Megas er látinn

6
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

7
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

8
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

9
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

10
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Til baka

Segir heiminn nú standa frammi fyrir „miklum skelfingum, mannfalli og flóttamannastraumi“

„Það eru engar hömlur á eyðingarmætti mesta herveldis heims og skuggastjórnendum þess í Ísrael“

Íran
Ayatollah Ali Khamenei minnstFjöldi manns safnaðist saman til að minnast leiðtogans sem drepinn var í árásum í gær
Mynd: ATTA KENARE / AFP

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, gagnrýnir harðlega árásir Ísraels og Bandaríkijanna á Íran og varar við alvarlegum afleiðingum þeirra í tveimur Facebook-færslum sem hann birti í kjölfar aðgerðanna. Þar segir hann Ísrael hafa hafið stríð gegn Íran með virkum stuðningi Bandaríkjahers, að hans mati án lögboðins samþykkis bandaríska þingsins.

„Þá hefur Ísrael hafið stríð gegn Íran og nýtur aðstoðar dyggra þjóna í Bandaríkjaher sem er att fram af forseta landsins án þess að hann hirði um að sækja lögboðið samþykki eigin þings,“ skrifar Kristinn. Hann segir jafnframt „svakalegt að frekar lítið ríki geti beitt fyrir sig slíkum hernaðarmætti til að þjóna eigin ofbeldishagsmunum“.

Kristinn vísar til leiðara í The New York Times, þar sem spurt sé: „hvers vegna hefur þú byrjað þetta stríð, herra forseti?“ Að hans mati sé um eðlilega spurningu að ræða í ljósi þess að engar skýrar útskýringar hafi verið gefnar á því hvernig stríðið eigi að þjóna hagsmunum Bandaríkjamanna. „Svarið er vitaskuld augljóst,“ bætir hann við og segir þá sem vonist eftir betri framtíð fyrir Írana og heiminn eftir átökin geta „deyft þá von með því að líta til annara stríða sömu árásarafla á þessari öld“.

Í færslunni beinir Kristinn einnig sjónum að íslenskum stjórnvöldum og spyr: „Mun ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fordæma þetta stríð?“

Í seinni færslu sinni fjallar hann nánar um yfirlýstan tilgang árásanna og vísar þar til Donald Trump. „Trump er skýr í að viðurkenna að tilgangur stríðsins sé valdaskipti,“ skrifar Kristinn og bendir á að slíkt hafi aldrei áður tekist með loftárásum einum saman. Hann útilokar þó ekki að það gæti gerst í fyrsta sinn, en varar við alvarlegum afleiðingum ef það mistekst.

„Ef það tekst ekki með gengdarlausu sprengjuregni næstu daga og vikur hefur Trump valkostinn að viðurkenna árangursleysi aðgerða, sum sé ósigur, eða senda landher inn í Íran,“ segir Kristinn. Hann telur mikla hættu á að heimurinn standi frammi fyrir „miklum skelfingum, mannfalli og flóttamannastraumi“ og bætir við að fyrri reynsla bendi eindregið til þess að sú verði raunin.

Að lokum lýsir Kristinn von um að svartsýnar spár hans rætist ekki, en segir jafnframt: „Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér en það eru engar hömlur á eyðingarmætti mesta herveldis heims og skuggastjórnendum þess í Ísrael.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu