1
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

2
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

3
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

4
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

5
Minning

Megas er látinn

6
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

7
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

8
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

9
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

10
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Til baka

„Veruleikinn er orðin svo sturlaður að hvergi virðist standa steinn yfir steini“

Auður Jónsdóttir gagnrýnir meðvirkni Vesturlanda í stríði gegn Íran

Auður Jónsdóttir rithöfundur
Auður JónssdóttirAuður er ósátt við Vesturlönd
Mynd: Wikipedia

Auður Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, gagnrýnir harðlega árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í Facebook-færslu þar sem hún dregur í efa röksemdir Vesturlanda og fordæmir það sem hún kallar meðvirkni gagnvart ofbeldi Ísraels.

Í færslunni bendir Auður á mótsagnir í alþjóðastjórnmálum og skrifar:

„Tvær kjarnorkuvopnaðar þjóðir, bandalagsþjóðirnar Bandaríkin og Ísrael (talið er víst að Ísraelar búi yfir kjarnorkuvopnum) ráðast á þá þriðju til að koma í veg fyrir að hún komi sér upp slíkum vopnum. Á sama tíma og Ísrael hefur staðið fyrir þjóðarmorði í Palestínu, án þess að þurfa að svara fyrir það. Meðvirkni vestrænna þjóða er svakaleg.“

Hún lýsir einnig umfjöllun evrópskra fjölmiðla og nefnir sérstaklega fréttaflutning Der Spiegel. Þar segist hún hafa séð „fréttaþul í vídeói þylja upp, í tóni samkenndar, hvernig Ísraelar hafi legið í rúmum sínum klukkan 8:15 á staðartíma við að smartsímar þeirra klyngdu með skilaboðum þess efnis að fólk ætti að búa sig undir gagnárás vegna árása fyrrnefndra þjóða á Íran“. Hún bætir við að sýndar séu „myndir frá fólki í sprengjubyrgi í Tel Aviv og dáðst að ró og aga þeirra í þeim kringumstæðum – og tekið fram að ekki megi gleyma því að Ísraelar hafi nú sleitulaust í tvö ár setið undir stríðsástandi“.

Í kjölfarið vísar Auður til umfjöllunar þar sem Donald Trump flytji „herræðu sína með afkáralega USA-derhúfuna um hryðjuverkamenn sem baða jörðina blóði“, á meðan Sky News sýni Benjamin Netanyahu tala „um hvernig þurfi að sigrast á morðóðri þjóð“.

Auður bendir jafnframt á umfjöllun RÚV, þar sem sagt sé frá sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga Frakklands, Þýskalands og Bretlands. Hún vitnar orðrétt í yfirlýsinguna:

„Frakkland, Þýskaland og Bretland hafa ítrekað hvatt írönsk stjórnvöld til að hætta við kjarnorkuáætlun landsins, draga úr eldflaugaáætlun sinni, hætta að valda óstöðugleika á svæðinu og í löndum okkar, og að hætta hræðilegu ofbeldi og kúgun gegn sinni eigin þjóð.“

Að hennar sögn kemur jafnframt fram að ríkin þrjú hafi ekki tekið þátt í árásum Bandaríkjanna og Ísraels, en séu í nánu samstarfi við bandamenn sína, þar á meðal Ísrael. „Og þannig er Ísrael, blóðugt af þjóðarmorði, normalíserað sem bandamaður,“ skrifar hún.

Að lokum vísar Auður til fréttar í íranska ríkisfjölmiðlinum IRNA, þar sem segir „að minnsta kosti 40 manns hafi verið drepin eftir að Ísraelar réðust á grunnskóla fyrir stelpur í borginni Minab“ [Nú er komið í ljós að yfir 100 voru drepin í árásinni]. Hún bætir við: „Þær hljótast þá að hafa flokkast sem þetta hræðilega fólk sem Trump er umhugað um að eyða.“

Færslu sinni lýkur Auður með þeim orðum að „veruleikinn er orðin svo sturlaður að hvergi virðist standa steinn yfir steini“.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu