1
Fólk

Selja dýrasta parhús landsins

2
Innlent

Kona á fertugsaldri illa slösuð eftir að lausagönguhundur hljóp hana niður

3
Innlent

Heiðrún missti nær alla sjón á öðru auga

4
Peningar

Patrekur Jaime stofnar fyrirtæki

5
Heimur

Sænsk fangelsi undirbúa sig fyrir komu 13 ára fanga

6
Pólitík

Brynjar kastar fram loforði fyrir kosningabaráttuna

7
Innlent

„Ekkert því til fyrirstöðu að hann droppi þessari stóru“

8
Pólitík

Dagur segir Moggann birta ljótar myndir af pólitískum andstæðingum

9
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku með höfuðáverka

10
Heimur

Atvinnumaður í knattspyrnu plataður til að myrða konu

Til baka

Heilahimnubólgufaraldur skekur Kent-háskóla

Nemendur bíða óttaslegnir í röðum eftir sýklalyfjum

Kent-háskóli
Kent-háskóliFaraldur skelfir nemendur Kent-háskóla
Mynd: Shutterstock

Nemendur við Kent-háskóla í Bretlandi standa nú í löngum röðum eftir sýklalyfjum vegna ótta við heilahimnubólgu en þar ríkir nú faraldur. Margir þeirra fara strax í kjölfarið um borð í rútur til að halda heim til fjölskyldna sinna víðs vegar um landið.

Sumir eru sagðir hafa beðið eftir rútum með ferðatöskur sínar tilbúnar. Ethan Norris, 24 ára, sem starfar í þrifadeild við Tyler Court á háskólasvæðinu, og sambýliskona hans Nancy O’Sullivan, 23 ára grunnskólakennari frá Essex, voru meðal þeirra sem biðu eftir lyfjunum.

Nancy sagði að óttinn meðal nemenda væri mikill.

„Ég sé myndbönd á samfélagsmiðlum af fólki sem er sótt um miðja nótt til að komast héðan. Ég hef séð nemendur með ferðatöskur fara upp í rútur núna,“ sagði hún.

„Þeir fá sýklalyfin sín og fara síðan heim. Próf hafa verið felld niður. Það sem við höfum séð er fjöldi háskólanema að pakka saman dótinu sínu. Það er mikil hræðsla því þetta kom svo skyndilega upp. Nemendur eru of hræddir til að vera á háskólasvæðinu. Maður veit ekki hversu langt þetta hefur þegar dreifst. Þetta er hræðilegt.“

Ethan sagði að hann hefði einnig séð alvarleg veikindi

„Ég sá nemanda vera fluttan út úr einni byggingunni á börum. Við biðum í meira en klukkutíma og fjörutíu mínútur eftir sýklalyfjapillu. Við höfum heyrt að tveir hafi látist svo þetta var eitthvað sem við urðum bara að gera. Þetta er ógnvekjandi.“

Nýnemaviðburður mögulega upphaf smitanna

Breska heilbrigðisöryggisstofnunin (UKHSA) segir að 13 tilfelli með einkenni heilahimnubólgu hafi verið tilkynnt á svæðinu í kringum Canterbury í Kent frá föstudegi til sunnudags. Sumir nemendur við Kent-háskóla hafa fengið sýklalyf á meðan aðrir eru lagðir inn á sjúkrahús. Enn hefur ekki verið staðfest hvaða tegund bakteríu veldur sýkingunni.

Thomas Ibbotson, þriðja árs nemi í viðskiptafræði og spænsku, segir að nemendum hafi verið sagt að faraldurinn tengist nýnemaviðburði sem einnig hafi verið sóttur af nemendum úr framhaldsskólum á svæðinu.

„Mér var sagt að þeir sem voru mest útsettir væru nýnemar sem fóru út þetta kvöld,“ sagði hann. „Þeir byrjuðu í heimapartíi og fóru síðan á skemmtistaðinn Club Chemistry síðar um kvöldið.“

Hann segir að háskólinn hafi varað sérstaklega við hættu fyrir þá sem hafi verið á skemmtistaðnum föstudags- eða laugardagskvöld.

„Nýnemarnir fóru síðan aftur í heimavistirnar þar sem þetta hefur dreifst. Ég bý ekki í byggingunni sem hefur orðið fyrir áhrifum, en ég bý nálægt Tyler Court þar sem eitt tilfelli hefur komið upp svo þetta veldur miklum áhyggjum.“

Thomas sagði að hann hygðist fara heim til öryggis.

„Ég ætla heim og vil því vera alveg öruggur. Þess vegna er ég í röðinni eftir sýklalyfjum.“

Daisy Gower, þriðja árs sálfræðinemi, segir að háskólinn hafi ráðlagt henni að fá lyf.

„Mér var sagt að ég gæti hafa verið í náinni snertingu við einhvern sem er smitaður í dansnámskeiði mínu. Við komum því hingað til að fá sýklalyf til öryggis,“ sagði hún.

Hún segir að ástandið hafi valdið mikilli ólgu meðal nemenda.

„Þetta hefur valdið mikilli hræðslu hér, en vonandi munu allir fá sýklalyf til að hjálpa til við að koma í veg fyrir að þetta dreifist.“

Vaknaði með kvefeinkenni

Annar nemandi, Ben Segneri, sagðist óttast að hann gæti sjálfur verið smitaður eftir að hafa fundið fyrir einkennum um morguninn.

„Ég vaknaði með kvefeinkenni, höfuðverk og vöðvaverki. Það gæti verið hvað sem er á þessum árstíma, en ég vil vera viss um að ég sé varinn svo ég ætla að taka sýklalyfin,“ sagði hann.

UKHSA hefur sent öllum um 16.000 nemendum háskólans bréf með upplýsingum um nýleg tilfelli, einkenni sjúkdómsins og hvernig hægt sé að nálgast sýklalyf.

Ekki verður þó öllum nemendum gefin lyfjameðferð, heldur aðeins þeim sem teljast hafa verið í nánum tengslum við smitaða einstaklinga, til dæmis með því að búa í sömu heimavist.

Heilbrigðisyfirvöld vinna nú að því að rekja smitleiðir og hafa samband við þá sem gætu verið í hættu til að takmarka frekari útbreiðslu sjúkdómsins.

Einkenni heilahimnubólgu

Börn geta auk þess haft eftirfarandi einkenni:

  • Lystarleysi
  • Óróleiki
  • Hávær grátur
  • Stífleiki í líkama, almennur slappleiki og meðvitundarskerðing
  • Afmörkuð útbungandi húð ofarlega á höfði

Orsakir

Heilahimnubólga getur orsakast af: 

  • Bakteríum
  • Veirum  
  • Sveppasýkingu 
  • Sníkjudýrum
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Reykvíkingur faldi 10 þúsund evrur í skóm
Innlent

Reykvíkingur faldi 10 þúsund evrur í skóm

Maðurinn hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti
Fimm menn í gæsluvarðhaldi eftir lífshættulega líkamsárás í Túnunum
Innlent

Fimm menn í gæsluvarðhaldi eftir lífshættulega líkamsárás í Túnunum

Verslun í Laugardalnum rænd
Innlent

Verslun í Laugardalnum rænd

Þröstur segir „Jesúbull“ hafa kostað sig oddvitasæti Miðflokksins
Pólitík

Þröstur segir „Jesúbull“ hafa kostað sig oddvitasæti Miðflokksins

Kona á fertugsaldri illa slösuð eftir að lausagönguhundur hljóp hana niður
Innlent

Kona á fertugsaldri illa slösuð eftir að lausagönguhundur hljóp hana niður

Bareigandi stunginn til bana í Las Palmas
Heimur

Bareigandi stunginn til bana í Las Palmas

Þingmaður Viðreisnar vill leyfa erlendar veðmálasíður
Pólitík

Þingmaður Viðreisnar vill leyfa erlendar veðmálasíður

Þrír raðmorðingjar sem enn ganga lausir
Heimur

Þrír raðmorðingjar sem enn ganga lausir

Brynjar kastar fram loforði fyrir kosningabaráttuna
Pólitík

Brynjar kastar fram loforði fyrir kosningabaráttuna

Heiðrún missti nær alla sjón á öðru auga
Innlent

Heiðrún missti nær alla sjón á öðru auga

Atvinnumaður í knattspyrnu plataður til að myrða konu
Heimur

Atvinnumaður í knattspyrnu plataður til að myrða konu

Sænsk fangelsi undirbúa sig fyrir komu 13 ára fanga
Heimur

Sænsk fangelsi undirbúa sig fyrir komu 13 ára fanga

Heimur

Bareigandi stunginn til bana í Las Palmas
Heimur

Bareigandi stunginn til bana í Las Palmas

Gamli maðurinn var að loka stað sínum þegar á hann var ráðist.
Megan Fox segist ennþá vera tvíkynhneigð
Myndir
Heimur

Megan Fox segist ennþá vera tvíkynhneigð

Þrír raðmorðingjar sem enn ganga lausir
Heimur

Þrír raðmorðingjar sem enn ganga lausir

Atvinnumaður í knattspyrnu plataður til að myrða konu
Heimur

Atvinnumaður í knattspyrnu plataður til að myrða konu

Sænsk fangelsi undirbúa sig fyrir komu 13 ára fanga
Heimur

Sænsk fangelsi undirbúa sig fyrir komu 13 ára fanga

Grunur um heilahimnubólgu í Lundúnum
Heimur

Grunur um heilahimnubólgu í Lundúnum

Loka auglýsingu