
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Mynd: Víkingur
Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. apríl á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Rannsókn málsins er í fullum gangi og er í algjörum forgangi hjá embættinu samkvæmt tilkynningunni. „Hún er mjög viðamikil og tímafrek eftir því, en einn til viðbótar situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar. Gæsluvarðhaldið yfir honum rennur út á föstudag“ segir lögreglan.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment