1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

7
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

8
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

9
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

10
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Til baka

Maki Nicolu Bulley stígur fram eftir harmleikinn

„Þetta getur alveg gleypt mann“

Nicole
Nicole og hundurinnSófaspæjarar gerðu lífið leitt fyrir fjölskyldu Nicole á sínum tíma
Mynd: Lögreglan í Lancaskíri

Maki Nicolu Bulley heitinnar, Paul Ansell, hefur í fyrsta sinn í tvö ár tjáð sig opinberlega um missinn og gefið innsýn í það sem fjölskyldan gekk í gegnum eftir hvarf hennar.

Að morgni 27. janúar 2023 virtist dagurinn hefjast með venjubundnum hætti fyrir Nicolu, 45 ára tveggja barna móður. Hún fór með dætur sínar í skólann í þorpinu St Michael's on Wyre í Lancaskíri í Englandi og fór síðan í göngutúr með hund sinn við ána River Wyre.

Skömmu síðar tók hún þátt í vinnufundi á netinu, sem lauk um klukkan 9:30. Nokkrum mínútum síðar fannst sími hennar skilinn eftir á bekk við árbakkann, ásamt taum og beisli hundsins sem gekk laus. Þá var ljóst að eitthvað var ekki í lagi og viðamikil leit hófst með aðkomu lögreglu, þyrlna og leitarhunda.

Málið vakti gífurlega athygli, bæði í Bretlandi og víðar. Íbúar svæðisins tóku þátt í leitinni, en jafnframt spruttu upp fjölmargar samsæriskenningar á samfélagsmiðlum. Sérstaklega vakti athygli að fólk á TikTok reyndi að „leysa“ málið og sumir beindu grun að Paul sjálfum án nokkurra raka.

Paul hefur nú loks opnað sig um málið og segist hann hafa orðið fyrir miklu álagi frá fjölmiðlum og samfélagsmiðlum:

„Þetta var 27. janúar 2023 og Nikki fór með stelpurnar í skólann og kom aldrei heim. Ég varð að umfjöllunarefni fjölmiðla, í þeim skilningi að spurt var: ‚Hvar er makinn? Af hverju tjáir hann sig ekki?‘ eða eitthvað þess háttar,“ sagði hann á fyrirlestri sem haldinn var í London School of Economics (LSE) á mánudaginn,“ segir Paul og heldur áfram:

„Ég fór út úr bílnum og ég held að ég hafi í rauninni ekki vitað hvað ég var að gera. Ég fór út úr bílnum, svo var ég gripinn af Sky og á næstu mínútu var ég í þessu viðtali. En svo ertu auðvitað, þú veist, sálgreindur, greindur. Augun í þér eru ekki rétt, þú ert með glott. Þetta voru ekki blöðin eða fréttirnar. Þetta var meira TikTok. Þetta var mjög íþyngjandi og hræðileg upplifun, sérstaklega á sama tíma og við vorum að ganga í gegnum allt þetta. Þetta getur alveg gleypt mann“.

Leitin að Nicola stóð yfir í 23 daga áður en lík hennar fannst í ánni. Dánarrannsókn síðar sama ár leiddi í ljós að hún hefði fallið í ískalt vatnið og drukknað nær samstundis.

Þrátt fyrir það hélt umræðan áfram á samfélagsmiðlum, og jafnvel eftir að lík hennar fannst var myndband af upptöku af vettvangi dreift á netinu, sem vakti mikla reiði en þar mátti sjá lík Nikolu dregið upp úr ánni.

Paul hefur sagt að hann eigi enn erfitt með að sætta sig við missinn og að hann sjái Nicola í dætrum þeirra á hverjum degi:

„Ég á enn erfitt með að tala um Nikki í þátíð. Ég sé hana í stelpunum á hverjum einasta degi,“ sagði hann.

Hann segir þó markmið sitt vera að veita dætrum sínum eins eðlilegt líf og mögulegt er, með stuðningi fjölskyldu og vina.

Skýrsla frá College of Policing hefur bent á að áhrif samfélagsmiðla á lögreglurannsóknir séu vaxandi vandamál og geti haft alvarleg áhrif á bæði rannsóknir og aðstandendur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

„Frábært félag, það þarf bara að hrista aðeins upp í hlutunum.“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu