Hópur borgara stöðvaði ungling í Arrecife á Lanzarote, sem tilheyrir Kanaríeyjum, á þriðjudagsmorgun eftir að hann rændi unga konu í miðborginni. Atvikið átti sér stað um klukkan 11 þegar 25 ára gömul kona varð skyndilega fyrir árás á götu úti og farsíma hennar var rænt úr hendi hennar.
Samkvæmt upplýsingum frá spænsku lögreglunni reyndi gerandinn einnig að ræna handtösku konunnar, með þeim afleiðingum að hún féll harkalega til jarðar og hlaut margvíslega áverka. Neyðaróp hennar vakti athygli nærstaddra, sem brugðust skjótt við, veittu manninum eftirför, náðu honum og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang.
Eftir að vitni höfðu haft samband við Beyðarlínuna var lögreglan send á staðinn. Þar tóku lögreglumenn skýrslur af brotaþola og þeim sem komu að málinu. Unglingurinn var handtekinn grunaður um rán með ofbeldi.
Konan var í kjölfarið flutt á sjúkrahús til aðhlynningar. Lögreglan lagði áherslu á mikilvægi samvinnu almennings og sagði skjót viðbrögð nærstaddra íbúa hafa skipt sköpum við að leysa málið á örfáum mínútum.


Komment