
Illugi Jökulsson hvetur valkyrjurnar þrjár í ríkisstjórninni til þess að heimsækja hina nýju ríkisstjórn Grænlands eigi síður en strax.
Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson skrifaði Facebook-færslu í gærkvöldi þar sem hann hvatti ráðamenn Íslands til að kíkja í opinbera heimsókn til Grænlands, í ljósi þess að nú er tekin við ný ríkisstjórn þar á bæ.
Eins og heimurinn veit hefur Donald Trump margoft lýst yfir áhuga sínum á að eignast Grænland, með hvaða hætti sem þurfi til, jafnvel með hernaði. Í ljósi þess að Grænlendingar eru næstu nágrannar okkar Íslendinga, telur Illugi að þær Kristrún, Þorgerður og Inga þurfi að sýna samstöðu í verki og mæta í heimsókn til Grænlands. Hér er færslan í heild sinni:
„Ný ríkisstjórn er tekin við á Grænlandi. Nú legg ég til að Kristrún, Þorgerður og Inga bregði sér allar bæjarleið ekki seinna en í þessari viku, heilsi upp á þessa næstu nágranna okkar og þýfgi þá um hvað við getum gert til að létta þeim lífið. Grænlendingar eru góðir heim að sækja, veit ég, og myndu áreiðanlega taka slíkri heimsókn fagnandi. Ekki bíða.“
Komment