1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

8
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

9
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

10
Heimur

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi

Til baka

Brim heldur áfram að græða milljarða

„Makrílveiðar gengu sérlega vel og þar voru há afurðaverð“

Guðmundur Kristjánsson Brim - NOTA ÞESSA
Guðmundur Kristjánsson er forstjóri Brims
Mynd: Brim

Brim hf. skilaði 60 milljóna evra hagnaði á rekstrarárinu 2025, sem jafngildir um 8,7 milljörðum króna. Til samanburðar nam hagnaður félagsins 40,5 milljónum evra árið 2024 og nemur aukningin því 48% milli ára. Félagið birti ársreikning sinn að lokinni lokun Kauphallar Íslands í gær

Stjórn félagsins hefur lagt til að greiddur verði arður vegna rekstrarársins 2025 að fjárhæð 4.043 milljónir króna.

„Rekstur Brims á árinu 2025 gekk vel. Umtalsverður samdráttur var í veiðum á mikilvægum botnfisktegundum eins og þorski, ýsu og gullkarfa en afurðaverð á þorski, ýsu og ufsa voru mjög há og réð þar mestu minna framboð á mörkuðum vegna aflabrests í Barentshafi.  Makrílveiðar gengu sérlega vel og þar voru há afurðaverð.

Á árinu 2025 kom í ljós eins og oft áður að Brim er traust og sterkt félag sem siglir áfram í gegnum öldur og brimskafla. Rekstur og efnahagur er öruggur. Heildareignir nema um 998 milljónum evra og er eiginfjárhlutfallið 52,2%. Bókfært eigið fé Brims er 521 milljón evra og nam arðsemi eigin fjárins 12%. Samkvæmt stefnu félagsins er um helmingur hagnaðar greiddur út til hluthafa eða 47% að þessu sinni og nema arðgreiðslurnar nú 2,1 kr á hvern hlut.
Þegar horft er um öxl til ársins 2025 í íslenskum sjávarútvegi ber hæst umrótið á vettvangi stjórnmálanna þar sem tekist var á um veiðgjöld og starfsskilyrði greinarinnar. Sú ólga sem þar skapaðist hafði lítil áhrif á rekstur Brims en þeim mun meiri áhrif á framtíðarhorfur sem birtist m.a. í að við héldum að okkur höndum í fjárfestingum í framleiðslutækjum félagsins á Vopnafirði, Akranesi og í Reykjavík.

Þegar horft er til ársins 2026 lítur vel út með veiðar og afurðaverð. Þegar hins vegar er horft til þeirra breytinga á lögum um veiðigjöld sem samþykkt voru á Alþingi á síðasta ári blasir við óvissa um hver veiðigjöld verða á hverja fisktegund á næstu árum því eins og sjá má á þessu ári þá hækkaði t.d. veiðigjald á makríl fyrir árið 2026 um 150% en lækkaði á síld um 60%. Einnig er mikil óvissa um þróun raforkuverðs á Íslandi í dag vegna mikilla hækkana  á flutningskostnaði raforku. Þegar óvissa sem þessi ríkir í rekstrarumhverfi sjávarútvegs-fyrirtækja er eðlilegt að þau haldi að sér höndum við fjárfestingu í framleiðslutækjum og fari varlega við uppbyggingu vinnslu sjávarfangs hér á landi,“ sagði Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, í tilkynningu um málið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýtt upphaf eftir skilnað
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

Einvera sögð lykill að sjálfsuppgötvun og auknum lífsgæðum
Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum
Heimur

Fjórir Palestínumenn og ólöglegur landnemi létust í blóðugum átökum á Vesturbakkanum

Íslandsmótið í sjósundi 2026
Myndband
Sport

Íslandsmótið í sjósundi 2026

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum
Myndband
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Peningar

Nýtt fyrirtæki Guðmundar í Brimi greiðir yfir milljarð í arð
Peningar

Nýtt fyrirtæki Guðmundar í Brimi greiðir yfir milljarð í arð

Metár og eigendaskipti hjá Þórsnesi í Stykkishólmi
Lilja Dögg og Gylfi Þór á eftirsóttum lista
Peningar

Lilja Dögg og Gylfi Þór á eftirsóttum lista

Engar eignir fundust í þrotabúi Pizza 67
Peningar

Engar eignir fundust í þrotabúi Pizza 67

Brauð & Co komið í hendur stórfyrirtækis
Peningar

Brauð & Co komið í hendur stórfyrirtækis

Móðurfélag Ölgerðarinnar hagnaðist gríðarlega
Peningar

Móðurfélag Ölgerðarinnar hagnaðist gríðarlega

Bullandi hagnaður hjá Nóa Siríus
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Nóa Siríus

Loka auglýsingu