1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

4
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

5
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

6
Pólitík

Tómas Þór sakar ríkisstjórnina um „skítkast“ og svikin loforð

7
Innlent

Almenningur fékk ekki að vita hvernig alvarleg sakamál enduðu

8
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

9
Peningar

Bændur kveðja sinn eigin lífeyrissjóð

10
Innlent

Kvörtun vegna erlendra ökuskírteina fékk ekki brautargengi

Til baka

Sístækkandi hópur ungmenna upplifir sig sem dýr

Therians-bylgja meðal ungmenna í Argentínu vekur spurningar um sjálfsmynd.

Therian-tískubylgja
Therian-tískubylgjanHani, krummi, hundur, svín
Mynd: Skjáskot

Á sunnudegi nýverið breyttist torg í Buenos Aires í Argentínu í eins konar útivistarsvæði þar sem óhefðbundinn hópur ungmenna kom saman. Sum klæddust raunverulegum dýragervum, önnur hreyfðu sig á fjórum fótum og hermdu eftir hreyfingum hunda, katta og refa, á meðan forvitnir vegfarendur fylgdust með úr fjarlægð.

Um var að ræða samkomu svokallaðra theriana – fólks sem segist tengjast dýrum á andlegan, sálrænan eða huglægan hátt. Fyrirbærið hefur rutt sér til rúms á samfélagsmiðlum í Argentínu síðustu mánuði, einkum á TikTok, þar sem myllumerkið #therian hefur farið yfir tvær milljónir færslna. Argentína sker sig úr meðal ríkja Suður-Ameríku hvað þátttöku varðar.

Unglingur sem kallar sig Aguara, 15 ára, segist tengjast belgískum smalahundi og lýsir sjálfri sér sem „leiðtoga hópsins“. Hún telur sig lifa eðlilegu lífi að mestu leyti en hafi stundum löngun til að „vera hundur“. „Ég vakna eins og venjuleg manneskja og lifi eins og venjuleg manneskja,“ segir hún, „ég á bara augnablik þar sem mér finnst gaman að vera hundur.“

Aguara er með yfir 125 þúsund fylgjendur á TikTok og skipuleggur reglulega samkomur í borginni. Þar hittast ungmenni sem annaðhvort skilgreina sig sem therians eða tilheyra svokallaðri „otherpaw“-undirgrein, þar sem þátttakendur klæðast grímum eða hreyfa sig á fjórum fótum sér til skemmtunar án þess að skilgreina sig endilega sem dýr.

Aru, 16 ára, sem mætti í selagrímu á samkomuna, segir áhersluna fyrst og fremst liggja í leik og sköpun. Hún telur að fyrirbærið hafi náð fótfestu í Argentínu vegna tiltölulega frjálslegs samfélagsumhverfis og að margir unglingar finni þar mikilvægt samfélag þar sem þeir upplifi sig samþykkta.

Fyrirbærið hefur vakið misjöfn viðbrögð – allt frá forvitni og hlátri til reiði og fordóma. Í kjölfarið hafa sálfræðingar farið að skoða þróunina nánar.

Débora Pedace, sálfræðingur og forstöðumaður meðferðarstofu í Buenos Aires, segir í samtali við AP að þetta snúast um táknræna sjálfsmynd. Hún telur hegðunina ekki varhugaverða nema hún verði að djúpstæðri sannfæringu þar sem einstaklingur taki alfarið á sig hlutverk dýrs. „Þá getur hún orðið meinleg, sérstaklega ef hún leiðir til sjálfsskaða eða skaða gagnvart öðrum,“ segir hún.

Pedace leggur áherslu á að umræðan þurfi að vera yfirveguð og byggð á skilningi fremur en hræðslu, þar sem flestir þátttakendur séu einfaldlega ungmenni að leita að sjálfsmynd og samfélagi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu
Innlent

Íbúum fjölgar hlutfallslega mest í minnsta sveitarfélaginu

Íbúum fækkar í 19 sveitarfélögum af 61.
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu