
Félagsmálaráðuneytið hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við Rauða krossinn um rekstur gistiskýlis fyrir réttindalausa hælisleitendur en hann rennur út í lok maí.
Í skriflegu svari við spurningu Mannlífs um málið segir Jón Brynjar Birgisson, sviðsstjóri aðgerðarsviðs Rauða krossins á Íslandi, segir Rauða krossinn ekki hafa upplýsingar um það hvað verði um þá aðila sem nýta sér gistiskýlið.
„Samningur, sem félagsmálaráðuneytið gerði við Rauða krossinn um rekstur gistiskýlis fyrir fólk sem hefur verið svipt rétti til opinberrar þjónustu í kjölfar neikvæðrar niðurstöðu hælisumsóknar, rennur út í lok maí. Ráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að framlengja samningnum ekki. Rauði krossinn hefur ekki upplýsingar um hvert dvalargestirnir muni geta leitað þegar skýlinu verður lokað en á í reglulegu samtali við stjórnvöld um þróun mála.“
Mannlíf spurði Jón hvað Rauða krossinum fyndist um að samningurinn verði ekki framlengdur, en hann sagði félagið ekki gera athugasemd við ákvörðunina en leggi áherslu á að fólkið í skýlunum endi ekki á götunni.
„Við munum halda áfram að fylgja þessum málum eftir næstu tvo mánuði fram að lokun. Félagið gerir ekki athugasemd við ákvörðun stjórnvalda en leggur áherslu á að þjónustunotendurnir muni geta gengið að húsaskjóli og næringu vísri þegar þjónustu Rauða krossins sleppir.“
Um 10 dvalargestir dvelja að jafnaði í gistiskýlinu.
Mannlíf hefur rætt við upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins í síma sem ætlar að svara í tölvupósti og er svara beðið.
Komment