1
Fólk

Anna Kristjáns svikin af íslenskri konu á Tenerife

2
Minning

Árni Árnason er fallinn frá

3
Landið

Sérfræðilæknir fær ekki vinnu á Íslandi

4
Heimur

Þrítug kona grunuð um að hafa drekkt dóttur sinni á Kanarí

5
Innlent

Faðir dæmdur fyrir að ráðast á dóttur sína

6
Fólk

Selja stórfenglega Vesturbæjarperlu fyrir háa upphæð

7
Menning

Ofbeldi og erótík í Breiðholti

8
Heimur

Emma Watson sögð í sambandi með milljarðamæringi

9
Peningar

Stórstjörnur stofna saman fyrirtæki

10
Innlent

Særún metin hæfari en fyrrverandi þingmaður

Til baka

Ingibjörg og Esther tilnefndar til Blaðamannaverðlauna

Ingibjörg var tilnefnd fyrir viðtal þar sem Halla Tómasdóttir greinir frá kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar.

IngibjörgEsther
Ingibjörg og EstherHæfileikaríkir blaðamenn þarna á ferðinni
Mynd: Samsett

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Heimildarinnar, og Esther Jónsdóttir, blaðamaður Heimildarinnar, hafa verið tilnefndar til Blaðamannaverðlauna Íslands. Ingibjörg er tilnefnd í flokki viðtals ársins en Esther í flokki umfjöllunar ársins.

Tilnefning Ingibjargar byggir á viðtali sem hún tók við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Í umsögn nefndarinnar kemur fram að Ingibjörg hafi fylgt forsetanum í lífi og starfi í nokkra daga, sem veiti lesendum nýja og áhugaverða innsýn í forsetann og manneskjuna á bak við embættið.

Esther hins vegar hlýtur tilnefningu fyrir lifandi og fræðandi umfjöllun um ferð sína með hópi vísindamanna á einn af allra afskekktustu stöðum landsins, Esjufjöll í Vatnajökli, eins og fram kemur í rökstuðningi nefndarinnar.

Viðtal ársins 2025

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildin

Fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgir Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gefur það lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann Höllu og konuna á bak við embættið. Halla greinir frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Í viðtalinu felast mikilvæg skilaboð frá Höllu til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð.
Hlekkur á viðtal Ingibjargar við Höllu

Jakob Bjarnar Grétarsson, Sýn

Fyrir viðtal á Vísir.is við Friðrik Ólafsson, stórmeistara í skák, í tilefni 90 ára afmælis hans. Jakob ávinnur sér traust þessa hlédræga og hógværa manns og úr verður skemmtilegt og fróðlegt viðtal þar sem Friðrik rekur lífshlaup sitt, viðurkennir að hafa verið undrabarn í skák, segir frá sambandi sínu við Bobby Fischer og ræðir breytingar sem hafa orðið á skákíþróttinni. Viðtalið er fallegur og fróðlegur minnisvarði um glæstan feril þessa merka skákmanns.
Hlekkur á viðtal Jakobs við Friðrik

Sunna Sæmundsdóttir, Sýn

Fyrir viðtal í Kompás við Birgi Karl Óskarsson og Iðunni Eiríksdóttur, foreldra Bryndísar Klöru sem lést eftir stunguárás á menningarnótt 2024. Birgir og Iðunn deila sögu sinni og harmi á erfiðustu stundu lífs síns. Þau draga ekkert undan í frásögn af atburðum hinnar örlagaríku nætur en á sama tíma veita þau þjóðinni innsýn í fallegt lífshlaup Bryndísar Klöru. Viðtalið er áhrifamikið og stuðlaði að umræðum og aðgerðum sem beinast að því að vinna að öryggi og velferð ungmenna.
Hlekkur á viðtal Sunnu við foreldra Bryndísar Klöru

Umfjöllun ársins 2025

Esther Jónsdóttir, Heimildin

Fyrir lifandi og afar fræðandi umfjöllun um ferð hennar með hópi vísindamanna á einn afskekktasta stað landsins, Esjufjöll í Vatnajökli. Esther tekst einstaklega vel að hrífa lesendur með sér, veita innsýn og vekja áhuga á vísindalegum uppgötvunum og sérhæfðum smáatriðum um gróðurfar og áhrif loftslagsbreytinga á samspil jökla og náttúru.
Hlekkur á umfjöllun Estherar

Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV

Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í Kveik um afleiðingar alvarlegrar e.coli matarsýkingar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Kristín fylgir málinu eftir af festu, varpar nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins, talar við fjölda fólks, spyr óvæginna spurninga og sýnir áður óbirt myndbönd og ljósmyndir. Umfjöllunin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti myndmiðilsins vel.
Hlekkur á umfjöllun Kristínar og Ingvars

Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir, RÚV

Fyrir hlaðvarpsþáttaröðina í Kísildal sem fjallar um uppruna þeirra hugmyndafræðilegu sviptinga sem nú eiga sér stað í Bandaríkjunum. Þættirnir eru fræðandi og afhjúpandi og ljóst að þáttastjórnendur hafa lagt í mikla heimildavinnu. Þetta margslungna og flókna umfjöllunarefni er sett fram í lifandi samtalsformi sem gerir efnið aðgengilegt og spennandi.
Hlekkur á hlaðvarpsþætti Kristjáns og Lóu

Rannsóknarblaðamennska ársins 2025

Freyr Gígja Gunnarsson og Helgi Seljan, RÚV

Fyrir umfjöllun í Speglinum um umfangsmikil viðskipti embættis ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtæki sem vann  afar fjölbreytileg verkefni fyrir embættið og fékk háar upphæðir greiddar. Með mikilli upplýsingaöflun var dregin upp skýr mynd af málinu. Umfjöllunin varpaði ljósi á  meðferð á opinberu fé hjá stórri ríkisstofnun og leiddi til atburðarásar sem endaði með því að ríkislögreglustjóri hætti störfum.

Gunnar Gunnarsson og Viðar Guðjónsson, Austurglugginn og Morgunblaðið

Fyrir umfjöllun um stöðu geðheilbrigðismála sem unnin var í samstarfi  Morgunblaðsins og  Austurgluggans og birtist á báðum. Upplýst var að maður sem banaði hjónum í Neskaupstað árið 2024 átti að vera í gæslu. Umfjöllunin beindi kastljósinu að stöðu geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og leiddi til þess að yfirvöld ákváðu að fjölga úrræðum fyrir einstaklinga sem hvorki áttu heima í fangelsi né á hefðbundinni geðmeðferðarstofnun.

Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson, RÚV

Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrrverandi og þáverandi lögreglumönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlitsnefndar um störf lögreglu, persónuverndar, dómsmálaráðherra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á verklagi lögreglu.

Blaðamannaverðlaun ársins 2025

Kjartan Kjartansson, Sýn

Fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Flókin umfjöllunarefni skýrð á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Kjartan hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið sem varð til þess að íslensk stjórnvöld  þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins.

Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Morgunblaðið

Fyrir ítarlega umfjöllun á mbl.is um neyðarástand í málefnum barna í viðkvæmri stöðu. Sólrún Lilja hefur sýnt einstaka þrautseigju við að vekja athygli á þessum vanda með ítrekuðum afhjúpunum, viðamikilli umfjöllun og eftirfylgni með málum. Hún hefur krafið stjórnvöld svara og þannig stuðlað að löngu tímabærum breytingum í þessum viðkvæma málaflokki. Nokkrar greinar úr umfjöllun Sólrúnar Lilju: Börnin sem kerfið brást - Svona smygla börnin inn fíkniefnum - Það er galið að barnið mitt sé dáið

Þóra Tómasdóttir, RÚV

Fyrir fréttaskýringar í þættinum Þetta helst. Þóra er næm á fréttaefni sem öðrum sést yfir og beitir ríkulegri frásagnargáfu við framsetningu þess. Dæmi um þetta er saga írska fiðluleikarans  Sean Bradley sem hvarf sporlaust frá Íslandi,  hálfíslensku dragdrottningarinnar Heklínu sem fannst látin við dularfullar aðstæður í Lundúnum, Sofiu Kolesnikovu sem fannst látin á Selfossi og unglingsstúlku sem varð fyrir barðinu á ofbeldishópnum 764.

Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna 2025

Pálmi Jónasson - formaður

Arndís Þorgeirsdóttir

Brynhildur Ólafsdóttir

Steinunn Stefánsdóttir

Fyrirvari um hagsmuni: Sameinaða útgáfufélagið ehf. á bæði Heimildina og Mannlíf

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Borgarfulltrúar yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn
Pólitík

Borgarfulltrúar yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn

Kjartan og Marta ganga til liðs við Miðflokkinn
„Rassfæðingar“-nashyrningurinn úr Ace Ventura fer á uppboð
Heimur

„Rassfæðingar“-nashyrningurinn úr Ace Ventura fer á uppboð

Ný skjöl í Epstein-málinu innihalda ásakanir gegn Trump
Heimur

Ný skjöl í Epstein-málinu innihalda ásakanir gegn Trump

Lögreglan lýsir eftir manni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir manni

Særún metin hæfari en fyrrverandi þingmaður
Innlent

Særún metin hæfari en fyrrverandi þingmaður

Þrítug kona grunuð um að hafa drekkt dóttur sinni á Kanarí
Heimur

Þrítug kona grunuð um að hafa drekkt dóttur sinni á Kanarí

MAST varar neytendur við ákveðnum pálmasykri
Innlent

MAST varar neytendur við ákveðnum pálmasykri

Styður þú áframhaldandi viðræður Íslands við ESB?
Könnun
Pólitík

Styður þú áframhaldandi viðræður Íslands við ESB?

Bróðir Áslaugar Örnu byrjar með stjórnmálahlaðvarp
Fólk

Bróðir Áslaugar Örnu byrjar með stjórnmálahlaðvarp

Helga Vala gagnrýnir „óttapólitík“ í umræðu um ESB-viðræður
Pólitík

Helga Vala gagnrýnir „óttapólitík“ í umræðu um ESB-viðræður

Ung kona faldi metamfetamín í hátalara
Innlent

Ung kona faldi metamfetamín í hátalara

Innlent

Ingibjörg og Esther tilnefndar til Blaðamannaverðlauna
Innlent

Ingibjörg og Esther tilnefndar til Blaðamannaverðlauna

Ingibjörg var tilnefnd fyrir viðtal þar sem Halla Tómasdóttir greinir frá kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar.
Tveir fluttir á sjúkrahús eftir alvarlegt slys
Innlent

Tveir fluttir á sjúkrahús eftir alvarlegt slys

Lögreglan lýsir eftir manni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir manni

Særún metin hæfari en fyrrverandi þingmaður
Innlent

Særún metin hæfari en fyrrverandi þingmaður

MAST varar neytendur við ákveðnum pálmasykri
Innlent

MAST varar neytendur við ákveðnum pálmasykri

Ung kona faldi metamfetamín í hátalara
Innlent

Ung kona faldi metamfetamín í hátalara

Loka auglýsingu