1
Fólk

Gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins

2
Minning

Tristan Magni Hauksson er látinn

3
Pólitík

Kristín hefur áhyggjur af mögulegum stjórnmálaflokki innflytjenda

4
Heimur

Dóttir Peter Falk fannst látin í Los Angeles

5
Innlent

Marteinn Óli fær 70 milljónir í styrk

6
Fólk

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega

7
Heimur

Ungur maður alvarlega slasaður eftir fall á Lanzarote

8
Innlent

Patreksfirðingur ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsmanni

9
Heimur

Rússneskur embættismaður fannst látinn í bíl sínum

10
Innlent

Enginn fótur fyrir fullyrðingum um rán í Lágafellskirkju

Til baka

Pétur Óskar á hraðri uppleið í leiklistarheiminum

Hefur fundið meira rými til að þróast og grípa tækifæri erlendis

Pétur Óskar Sigurðsson
Pétur Óskar SigurðssonGerir það gott í Þýskalandi
Mynd: Aðsend

Leikarinn Pétur Óskar Sigurðsson hefur heldur betur verið að vekja á sér athygli í Þýskalandi en hann fór nýlega með stórt hlutverk í Das Traumschiff, sem er einn af vinsælustu sjónvarpsþáttum landsins.

Þátturinn gerist á Íslandi þar sem íslensk náttúra og þjóðsögur gegna mikilvægu hlutverki. Pétur leikur Jón, dularfullan huldumann sem leiðir aðalpersónuna inn í dýpri skilning á sjálfri sér. Þau laðast að hvort öðru, sem mótar andrúmsloft sögunnar töluvert.

Þá lék hann einnig í Tatort fyrir stuttu síðan en sú sería hefur verið í sýningu í rúm 50 ár í Þýskalandi.

Mannlíf ræddi við Pétur um lífið í Þýskalandi, ferilinn og framtíðina.

„Það er í raun ekki mikill munur,“ sagði Pétur þegar hann var spurður út í muninn á því að vinna á Íslandi og í Þýskalandi. „Ég vinn mest í Þýskalandi og nálgun þeirra á leiklist er svipuð og hjá okkur. Fagmennskan er mikil og vel er hugað að smáatriðum, sem ég kann vel að meta. Settin eru oft stærri og umgjörðin meiri, en kjarninn er alltaf sá sami, að ná tengingu við mótleikara, vera í núinu og treysta ferlinu. En það sem er fallegt við Ísland er líka það sem getur verið krefjandi. Þetta er lítið og samofið kerfi þar sem tengsl skipta oft miklu máli. Í stærri borgum eins og Berlín hef ég fundið meira rými til að þróast og grípa tækifæri á eigin forsendum, sem hentar mér vel á þessum tímapunkti,“ en Pétur er sennilega þekktastur á Íslandi fyrir leik sinn í Ófærð. Einnig hefur hann leikið í þáttunum Flamingó bar og myndunum Grimmd og Andið eðlilega.

Vill bæta sig með hverju hlutverki

Þrátt fyrir velgengni erlendis segist hann ekkert endilega sækjast í hlutverk í útlöndum.

„Fyrir mér skiptir mestu máli að vera að vinna að einhverju sem hefur einhvern tilgang og með fólki sem ég tengi við. Undanfarin ár hafa einfaldlega fleiri og stærri tækifæri komið upp í Þýskalandi. Þegar ég er að íhuga að taka að mér hlutverk þá er ég með eina reglu fyrir sjálfan mig, sama hvort hlutverkið sé lítið eða stórt - er ég að fara læra eitthvað af þessu og er ég að fara að bæta mig sem leikari.“

Pétur hefur þó ekki aðeins leikið í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum en hann kom einnig fram í tölvuleiknum Hellblade: Senua's Sacrifice, sem gerðist á Íslandi og sækir mikið í norræna menningu. Leikurinn var einn sá vinsælasti sem kom út árið 2017 og hlaut mörg virt verðlaun.

„Það var mjög skemmtileg reynsla. Ég man sérstaklega eftir casting-ferlinu. Ég átti að senda inn prufur þar sem ég lék ýmsar verur, meðal annars tröll. Ég var staddur í Lúxemborg á þeim tíma og fór út í skóg að taka upp, öskrandi línur eins og „The TROLLS are coming“. Það var dálítið sérstakt að standa einn í skógi og gera þetta, vitandi að einhver gæti verið að hlusta og velta fyrir sér hvað Í ósköpunum væri eiginlega í gangi. Þegar ég labbaði heim úr skóginum hugsaði ég líka bara, hver ertu eiginlega, þetta er bara lífið þitt,“ sagði leikarinn um ferlið í kringum tölvuleikinn.

Framtíðin á Íslandi og Þýskalandi

Spurður um framtíðina segist hann sjá fyrir sér að vera á Íslandi á sumrin og Berlín á veturna ásamt „stuttum stoppum á heitari stöðum inn á milli“ eins og leikarinn orðar það.

„Mig langar að halda áfram að þróast sem leikari og vinna í seríum og kvikmyndum. Á sama tíma legg ég meiri áherslu á, þessi misserin, að vera sáttur við sjálfan mig, óháð verkefnum. Maður getur auðveldlega fest sjálfsmyndina við það að finnast maður bara vera eitthvað þegar maður er í verkefni - að vinna. Ég er líka bara flottur þó ég sé á leið út í Nettó og það er ekkert að gera hjá mér,“ segir Pétur.

En hvernig fórstu að því að koma þér á framfæri í Þýsklandi?

„Ég lærði við skóla sem heitir Cours Florent í París þar sem við settum á laggirnar þýska leiklistardeild. Í tengslum við það fór ég til Berlínar og sú ferð kveikti áhuga minn á að vinna þar. Ég er einnig fæddur og uppalinn í Lúxemborg til tíu ára aldurs og tala því þýsku. Sem barn horfði ég mikið á þýskt sjónvarp með fjölskyldunni, og það er sérstakt að vera nú sjálfur að vinna í því umhverfi og með þessum leikurum sem maður horfði á í gamla daga. Ég komst svo í samband við umboðsskrifstofu í Berlín í gegnum vinkonu úr skólanum og hef unnið með þeim síðan.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Evrópuríki fordæma stöðvun hjálparskipa á leið til Gaza
Myndband
Heimur

Evrópuríki fordæma stöðvun hjálparskipa á leið til Gaza

Tyrkir kalla handtökurnar „sjórán“
„Því meira sem við aukum hörkuna því harðari verða gengin“
Innlent

„Því meira sem við aukum hörkuna því harðari verða gengin“

Faldi eina og hálfa milljón í skóm
Innlent

Faldi eina og hálfa milljón í skóm

Myndband sýnir ótrúlega björgun föðurs
Myndband
Heimur

Myndband sýnir ótrúlega björgun föðurs

Patreksfirðingur ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsmanni
Innlent

Patreksfirðingur ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsmanni

Ungur maður alvarlega slasaður eftir fall á Lanzarote
Heimur

Ungur maður alvarlega slasaður eftir fall á Lanzarote

Tristan Magni Hauksson er látinn
Minning

Tristan Magni Hauksson er látinn

Marteinn Óli fær 70 milljónir í styrk
Innlent

Marteinn Óli fær 70 milljónir í styrk

Enginn fótur fyrir fullyrðingum um rán í Lágafellskirkju
Innlent

Enginn fótur fyrir fullyrðingum um rán í Lágafellskirkju

287 tilnefningar til Friðarverðlauna Nóbels
Heimur

287 tilnefningar til Friðarverðlauna Nóbels

Fjórir endaðu í Signu eftir umferðarslys í Frakklandi
Heimur

Fjórir endaðu í Signu eftir umferðarslys í Frakklandi

Kristín hefur áhyggjur af mögulegum stjórnmálaflokki innflytjenda
Pólitík

Kristín hefur áhyggjur af mögulegum stjórnmálaflokki innflytjenda

Fólk

Gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins
Fólk

Gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björgvins

Tónlistarmaðurinn vildi mæta en gat það því miður ekki
Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini
Fólk

Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini

Tignarlegt einbýli í Árbænum til sölu
Myndir
Fólk

Tignarlegt einbýli í Árbænum til sölu

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega
Myndir
Fólk

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega

Verðlaunadómari selur parhús í Laugardalnum
Myndir
Fólk

Verðlaunadómari selur parhús í Laugardalnum

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta
Fólk

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta

Loka auglýsingu