
Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó veðurguð eins og hann er yfirleitt kallaður, hefur tilkynnt á samfélagsmiðlum að ekkert verði af tónleikum sem hann átti að koma fram á í kvöld.
„Við þurfum því miður að aflýsa tónleikunum sem áttu að vera í Sólheimakirkju í kvöld. Allir sem höfðu tryggt sér miða fá að sjálfsögðu endurgreitt,“ skrifar Ingólfur.
„Tónleikahaldarinn mun skýra þetta mál nánar á næstu dögum. Planið var að styrkja hið góða starf sem unnið er á Sólheimum og gleðja fólkið þar en komið var í veg fyrir það að þessu sinni, en áfram gakk. Ég ætla að reyna að koma sem fyrst uppeftir og halda alvöru gigg,“ heldur hann svo áfram.
„Sé vonandi sem flesta fyrir norðan um páskana,“ skrifar hann svo að lokum.
Ingólfur hefur á undanförnum árum verið einn umdeildasti tónlistarmaður landsins en hann hefur verið mikið á milli tannanna á fólki en sumarið 2021 voru birtar 20 nafnlausar sögur af meintu ofbeldi Ingólfs. Í framhaldinu af því var tónlistarmanninum „slaufað“ en hann virðist hægt og rólega vera að byggja upp tónlistarferilinn aftur. Hann hafði fram að því verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins.

Komment