
Talið er að Karl III Bretakonungur vilji grafa stríðsöxina við son sinn, Harrý prins, og í því skyni hyggist hann bjóða honum og Meghan Markle að flytja í Royal Lodge, fyrrverandi heimili Andrews Mountbatten-Windsor.
Greint er frá því að konungurinn vilji bæta samskiptin við hinn 41 árs Harrý, eftir þann klofning sem talinn er hafa myndast frá því hann og Meghan yfirgáfu konungsfjölskylduna árið 2020 og hófu nýtt líf í Kaliforníu. Royal Lodge stendur nú autt eftir að Karl vísaði bróður sínum, Andrew, úr húsinu seint á síðasta ári, og heimildarmenn segja konunginn líta á eignina sem tækifæri fyrir son sinn og tengdadóttur.
Einn heimildarmaður sagði: „Þetta væri hin fullkomna friðargjöf. Karl vill einingu. Að bjóða Harry glæsilega eign í Windsor myndi senda skýr skilaboð um að dyrnar séu enn opnar.“
Talið er þó að slíkt myndi ekki falla Andrew vel í geð, en hann bjó í Royal Lodge í um 20 ár. Hann hefur samkvæmt fréttum átt erfitt með að flytja í bráðabirgðahúsnæði sitt, Wood Farm, sem hann á að hafa lýst sem „fyrir neðan sig“.
Í pistli sínum á Substack segir konungsfjölskyldusérfræðingurinn Rob Shuter að hann hafi rætt við ýmsa heimildarmenn sem telja að hinn 77 ára Karl sé tilbúinn að láta fortíð vera fortíð og sættast við Harry. Heimildir lýsa Royal Lodge, sem stendur í Windsor Great Park, sem „dýru í rekstri, í þörf fyrir umfangsmiklar viðgerðir og þjökuðu af áralangri neikvæðri umræðu.“
Royal Lodge hafði verið heimili Andrews og Söruh Ferguson frá árinu 2004, en umræðan í kjölfar Epstein-skjalanna hefur leitt til þess að Andrew flutti í Wood Farm og Sarah annars staðar. Myndir sem Daily Mirror birti í fyrra sýndu jafnframt umfang mikilla viðgerða sem 30 herbergja húsið þarfnast.
Óvíst er þó hvort Harry og hin 44 ára Meghan hyggist snúa aftur til konunglegra starfa. Í fyrra virtist sem þau hefðu íhugað að flytja frá Bandaríkjunum aftur til Bretlands, meðal annars þegar vegabréfsumsóknir barna þeirra, Boga prins og Lísabetu prinsessu, innihéldu titilinn HRH (Hans/Hennar Konunglega Hátign) ásamt eftirnafninu Sussex. Talið er að Harry og Meghan vilji að börnin geti síðar sjálf ákveðið hvort þau vilji sinna opinberum skyldum eða halda sig utan sviðsljóssins.
Í Substack-pistli sem birtist í vikunni sagði þó einn heimildarmaður: „Ímyndin er flókin. Að flytja Harry og Meghan í gamla húsið hans Andrews tengir þau við eign sem hefur orðið samofin hneykslismálum.“
Í síðasta mánuði var einnig greint frá því að konungurinn hefði boðið Sussex-hjónunum gistingu í Highgrove House á meðan Invictus-leikarnir fara fram árið 2027 í Birmingham. Borgin hlaut réttinn til að halda leikana vegna sterkrar áherslu á velferð og endurhæfingu hermanna og fyrrverandi hermanna.

Komment