Bresk yfirvöld hafa ákært áhrifavaldinn og klámstjörnuna Bonnie Blue, sem heitir réttu nafni Tia Billinger, fyrir brot gegn almennri velsæmisreglu eftir atvik sem átti sér stað í London í desember 2025.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni snýr ákæran að því að hún hafi hermt eftir kynferðislegu athæfi fyrir utan sendiráð Indónesíu í borginni, á meðan hún hélt á indónesískum fána. Atvikið var tekið upp og birt á samfélagsmiðlinum TikTok, þar sem hún sást umkringd grímuklæddum einstaklingum.
Í myndbandinu vísaði hún til fyrri handtöku sinnar á eyjunni Balí árið 2025, þar sem hún var grunuð um að framleiða klámfengið efni á netinu eftir að hafa tekið þátt í upptöku í ökutæki merkt „Bang Bus“. Í kjölfarið var henni vísað úr landi af indónesískum yfirvöldum.
Rannsókn málsins í London hófst síðar, og var Billinger yfirheyrð 2. febrúar 2026. Málið var í framhaldinu sent til saksóknara, sem heimilaði ákæru.
Hún mun þurfa að mæta fyrir dóm þann 22. apríl næstkomandi, þar sem hún mun svara til saka fyrir meint brot á almennri velsæmisreglu.


Komment