
Sex meðlimir palestínskrar fjölskyldu fóru saman í bíltúr á Vesturbakkanum, en aðeins tveir þeirra komust lifandi heim. New York Times sagði frá málinu, meðal annarra.
Ali Bani Odeh hafði ekki séð eiginkonu sína og fjóra unga syni þeirra í um einn og hálfan mánuð þegar hann kom heim til Tammun á Vesturbakkanum seint á föstudagskvöld eftir vinnu við byggingarstörf í Ísrael. Hann ætlaði að eyða síðustu dögum Ramadan með fjölskyldunni.
Á laugardagskvöld sannfærðu synirnir hann um að fara með sér í stuttan bíltúr. Eid al-Fitr, hátíðin sem markar lok Ramadan, var í nánd og þeir vildu kaupa sér ný föt og fá sér sælgæti eftir að dagsföstunni lauk.
Fjölskyldan keypti steikta kleinuhringi í Tubas og ætlaði að borða þær síðar. Fataverslunin sem þau ætluðu í í Nablus reyndist þó lokuð þegar þau komu þangað eftir miðnætti og því héldu þau aftur heim til Tammun.
Í aftursætinu sátu Khaled, 11 ára, Mustafa, 8 ára, og Muhammad, 5 ára. Othman, sex ára, sem er blindur og getur hvorki gengið né borðað sjálfur, sat í fanginu á móður sinni í framsætinu.
Skothríð skammt frá heimili þeirra
Þegar fjölskyldan var aðeins nokkrar mínútur frá heimili sínu sagði móðirin, Waad, 35 ára, eiginmanni sínum að stoppa bílinn svo hún gæti rétt úr sér og náð í eitthvað úr tösku sinni.
Að sögn drengjanna sáu þeir skyndilega leysigeisla beinast að bílnum úr öllum áttum. Þeir heyrðu móður sína öskra og föður sinn segja „Guð er mikill“ áður en mikil skothríð hófst.
Í sameiginlegri yfirlýsingu frá ísraelsku lögreglunni og hernum á sunnudagsmorgun sagði að landamæralögregla og hermenn hefðu verið í Tammun til að handtaka grunaða hryðjuverkamenn. Þar hafi þeir „skynjað hættu“ þegar ökutæki „hraðaði sér í átt að þeim“ og þeir því „brugðist við með skothríð“. Málið sé til rannsóknar.
Frásagnirnar eru mjög ólíkar en eitt er óumdeilt: Ali Bani Odeh, 37 ára, eiginkona hans Waad og synirnir Othman og Muhammad létust öll af skotsárum.
Aukið ofbeldi á Vesturbakkanum
Á Vesturbakkanum, sem er undir hernámi Ísraels, hefur spenna aukist verulega undanfarið. Öfgafullir ísraelskir svokallaðir landnemar hafa verið sakaðir um að ráðast á palestínska íbúa og mannfall hefur aukist.
Samkvæmt heimildum hafa sjö Palestínumenn verið drepnir það sem af er ári, flestir eftir að átök milli Ísraels og Írans hófust 28. febrúar.
Ísraelski herinn segir að hann fordæmi ofbeldi landnema og vinni að því að koma í veg fyrir það. Lögreglan segir einnig að hún rannsaki slík brot, þó að gagnrýnendur telji að ofbeldismenn séu sjaldan dregnir til ábyrgðar.
Tammun er þó djúpt inni á svæði sem palestínsk yfirvöld stjórna og er langt frá svæðum þar sem átök svokallaðra landnema og Palestínumanna eru algeng.
Tveir drengir lifðu af
Tveir synir fjölskyldunnar, Khaled og Mustafa, lifðu árásina af.
Mustafa var með sár á nefinu eftir brot úr byssukúlu. Hann sagðist hafa reynt að draga yngsta bróður sinn, Muhammad, til sín til að hjálpa honum en þá hafi hann þegar verið látinn.
Khaled, sem er í sjötta bekk, sagði að eftir að skothríðinni lauk hafi hann opnað bílhurðina og kallað eftir hjálp.
Hann segir að hermenn hafi skipað honum að þegja og að einn þeirra hafi dregið hann út úr bílnum í hárinu, kastað honum í jörðina og sparkað í hann á meðan hann var yfirheyrður um hvort fleiri hefðu verið í bílnum.
Síðar hafi arabískumælandi hermaður talað vingjarnlega við hann og kallað hann „habibi“ (minn kæri), en sparkað síðan í hann aftur.
Drengirnir fengu að ganga í átt að palestínskum sjúkrabíl sem beið um hundrað metra frá. Þegar Khaled leit aftur inn í bíl fjölskyldunnar sá hann foreldra sína látna.
„Ólýsanlegt“
Afi drengjanna sagði að tengdadóttir hans hefði verið skotin nokkrum sinnum í höfuð og brjóst og að fimm ára gamli Muhammad hefði fengið mörg skotsár í andlit.
„Það er ólýsanlegt,“ sagði Khaled, ellefu ára. „Einni eða tveimur klukkustundum áður vorum við í Nablus. Þau fóru með okkur á marga staði. Þau keyptu handa okkur kleinuhringi. Svo vorum við bara á leiðinni heim.“
Kleinuhringirnir sem fjölskyldan keypti fyrr um kvöldið voru enn ósnertir í pokanum.

Komment