
Gísli Tryggvason lögmaður, fyrrverandi framkvæmdastjóri BHM, telur líklegt að dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, víki Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra tímabundið frá störfum. Hann segir að skipuð verði sérstök nefnd til að fara yfir meintar óreglur í fjármálum embættisins.
Spá Gísla kom fram í viðtali Björns Þorlákssonar við hann á Samstöðinni sem sýnt verður í kvöld. Gísli hefur áður setið í nefndum sem hafa fjallað um fjármálaóreiðu innan opinberra stofnana.
Frétt Ríkisútvarpsins á dögunum vakti mikla athygli þar sem greint var frá háum greiðslum til ráðgjafa embættisins undir hatti fyrirtækisins Intru. Þar kom meðal annars fram að greiddar hefðu verið tugþúsundir króna á tímann fyrir ráðgjöf og ýmis verkefni sem tengdust starfsemi ríkislögreglustjóra, þar á meðal hugmyndavinnu um píluspjöld og ferðir.
Að sögn Gísla yrði settur staðgengill ríkislögreglustjóra ef af tímabundinni lausn yrði. Hann útilokar ekki að Sigríður gæti átt rétt á skaðabótum ef rannsókn nefndarinnar sýndi að hún hefði ekki brotið gegn reglum eða góðum stjórnsýsluháttum.
Að sögn Gísla er engin spurning að dómsmálaráðherra þurfi að bregðast við þessu máli.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra lagði í samtölum við fjölmiðla í gær áherslu á að málið væri alvarlegt og að unnið yrði í því af festu.
Í 6. kafla laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er fjallað um málsmeðferð og réttarstöðu opinberra starfsmanna sem víkja má tímabundið frá embætti á meðan mál eru til skoðunar.

Komment