
Lögregluyfirvöld í Litáen munu ekki tjá sig um rannsókn á máli Marijus Sidavicius en hann hefur verið eftirlýstur á Íslandi síðan 6. mars.
Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þann 6. mars stendur til að Sidavicius verði sendur til Litáens á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar en hann hefur ekki fundist en hann er frá Litáen.
Lögreglan hefur þó lagt áherslu á að Sidavicius sé ekki hættulegur en hefur ekki viljað gefa upp af hverju handtökuskipun var gefin út.
Mannlíf sendi fyrirspurn á lögregluyfirvöld í Litáen um málið en í svari þeirra kemur fram að þau muni tjá sig um rannsóknir mála í öðrum löndum og hvetur fjölmiðla til að leita svara hjá íslenskum lögregluyfirvöldum.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Marijus, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 112. Marijus hefur til umráða gráan Ford S-Max með skráningarnúmerið IKR17 og er bifreiðarinnar einnig leitað.
Marijus er jafnframt hvattur til að gefa sig fram hjá lögreglu.

Komment