1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

Píratar lyfta hulunni af nýju merki flokksins

„Táknar frelsi, hugrekki og áform Pírata að vera í stafni þegar kemur að málefnum framtíðarinnar, mannréttindum og samfélagsbreytingum,“

oktavía hrund guðrúnar jóns
Oktavía Hrund Guðrúnar JónsPíratar töldu þörf á nýju merki og nýju slagorði fyrir komandi kosningar
Mynd: Víkingur

Píratar hafa tekið upp nýtt merki sem markar nýjan kafla í ímynd og stefnu flokksins. Í fréttatilkynningu segir að merkið sé „allt í senn stílhreint, skýrt og í anda flokksins.“

Nýja aðalmerkið er dökkfjólublár fáni á fjólubláum grunni og hefur tekið breytingum frá fyrri útgáfu. „Glöggir munu taka eftir að fáninn, sem hefur verið aðalsmerki Pírata frá stofnun, hefur skerpst og harðfiskurinn vikið fyrir opnum fána sem táknar frelsi, hugrekki og áform Pírata að vera í stafni þegar kemur að málefnum framtíðarinnar, mannréttindum og samfélagsbreytingum,“ segir í tilkynningunni.

Píratar
Mynd: Píratar

Endurmörkunin var unnin í samstarfi við auglýsingastofuna Cirkus og varð jafnframt til nýtt slagorð fyrir komandi borgarstjórnarkosningar: „Bestum borgina.“

Rósa María Árnadóttir, framkvæmdastjóri Cirkus, segir verkefnið hafa endurspeglað breytingar innan flokksins

„Samstarfið við Pírata hefur verið frábært. Frá fyrsta fundi var augljóst að flokkurinn stæði á tímamótum og að mikilvægt væri að draga fram kjarnann í því sem Píratar standa fyrir. Afraksturinn er nýtt merki, hnitmiðað slagorð og skýr samskiptastefna sem endurspeglar stemninguna og eldmóðinn í flokknum fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.“

Samkvæmt tilkynningunni kemur breytingin í kjölfar nýs skipulags innan flokksins, þar sem Píratar kusu sinn fyrsta formann á síðasta ári. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, segir nýja merkið tákna nýja tíma: „Fáninn er merki um nýja tíma hjá Pírötum. Það blása ferskir vindar um flokkinn þessa dagana og þá er gott að merki Pírata sé fáni sem blaktir við hún.“

Hún bætir við að flokkurinn sé „kraftmikill og tilbúinn í næsta kafla stjórnmálanna, óhræddur við að taka slaginn gegn upprisu fasisma í heiminum og staðráðinn í að standa vörð um mannréttindi.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Þátttakendur verða hvattir til að líta í kringum sig
Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku
Myndband
Heimur

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku

Helgi í Góu verður ríkari
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina
Innlent

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina

Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð“
Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Loka auglýsingu