Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina

Maðurinn neitaði sök

Íslenskir seðlar
Íslenskir seðlar Mynd: Bernhard Richter/Shutterstock

Karlmaður hefur verið sýknaður í Héraðs­dómi Vestur­lands af ákæru um fjárdrátt upp á samtals 686.150 krónur. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa dregið sér fé úr fyrirtæki þar sem hann starfaði sem framkvæmda­stjóri og hafði prókúru.

Samkvæmt ákæru milli­færði maðurinn tvær greiðslur af reikningi fyrir­tækisins inn á persónu­legan banka­reikning sinn árið 2023. Önnur greiðslan nam 456.150 krónum en hin 230.000 krónum. Ákæru­valdið taldi að milli­færslurnar hefðu verið gerðar án heimildar og í eigin þágu mannsins.

Maðurinn neitaði sök og hélt því fram að um fyrir­framgreidd laun hefði verið að ræða. Hann sagði eiganda fyrir­tækisins hafa samþykkt greiðslurnar og að ætlunin hefði verið að gera þær upp síðar.

Dómurinn taldi gögn málsins ekki nægja til að sanna að maðurinn hefði haft ásetning til fjár­dráttar. Fram kom að fyrir­fram­greiðslur launa hefðu tíðkast hjá fyrir­tækinu og að fram­burður eigandans hjá lögreglu hefði stutt að minnsta kosti að hluta frásögn ákærða um að greiðslurnar hefðu verið heimilaðar.

Dómurinn gagnrýndi jafnframt rannsókn málsins og taldi að ekki hefði verið rannsakað nægilega hvernig fyrir­framgreidd laun hefðu almennt verið meðhöndluð hjá fyrir­tækinu.

Þá þótti það styðja málstað ákærða að hann hefði sjálfur leitað til stéttar­félags eftir starfslok og upplýst þar um óuppgerð fyrir­framgreidd laun. Hann hefði ætlað að skulda­jafna þau á móti launum og orlofi sem hann taldi sig eiga inni.

Dómurinn komst að þeirri niður­stöðu að ákæru­valdið hefði ekki sannað sök mannsins hafna yfir skyn­samlegan vafa. Var hann því sýknaður.

Málsvarnar­laun verjanda hans, tæplega ein milljón króna, auk aksturs­kostnaðar, greiðast úr ríkis­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum