1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

3
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

4
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

5
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

6
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

7
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

8
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

9
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

10
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Til baka

María Birta missti sjónina tímabundið eftir flókna aðgerð

Steig á svið nokkrum dögum síðar

María Birta
María Birta FoxMaría Birta er á batavegi
Mynd: Instagram

Leikkonan María Birta Bjarnadóttir Fox greinir frá því í samtali við Mannlíf að hún hafi nýlega gengist undir umfangsmikla aðgerð en ákvörðunin hafi verið vel ígrunduð og lengi í undirbúningi. María Birta býr í Las Vegas ásamt eiginmanni sínu, listamanninum Ella Egilssyni.

Í svörum sínum útskýrir María Birta Bjarnadóttir Fox að hún hafi ákveðið að láta taka sig úr sambandi eftir langa umhugsun. „Í stuttu máli þá var ég að láta taka mig úr sambandi. Þetta er eitthvað sem ég hefði pælt í að gera í langan tíma og var búin að segja Ella að ég myndi gera um leið og dóttir okkar Ignacia myndi eignast systkini,“ segir hún og bætir við að fjölskyldan hafi ættleitt systur dóttur þeirra, Nöju, í maí í fyrra. „Við ættleiddum systur hennar, Nöju, í maí í fyrra og ég bókaði aðgerðina í sama mánuði.“

Flókin aðgerð

Aðgerðin reyndist erfiðari en upphaflega var gert ráð fyrir. María Birta greindist með blöðru á eggjastokk skömmu fyrir aðgerðina. „Aðgerðin varð aðeins flóknari en við bjuggumst við því að ég greindist með 6.3cm blöðru á eggjastokk í lok nóvember sem ég vissi að þyrfti að taka eins fljótt og auðið er, en það var hægt að gera þetta allt í sömu aðgerð, fjarlægja eggjaleiðara, blöðruna og gera svokallað uterine ablation.“

Hún segir afleiðingar aðgerðarinnar skýrar, en jafnframt í samræmi við hennar eigin framtíðarsýn. „Núna get ég semsagt hvorki orðið ólétt né gengið með barn, en það var aldrei planið mitt hvort eð er.“ Hún tekur einnig fram að heilsufarsástæður hafi legið að baki ákvörðuninni. „Ég fór í aðgerðina því ég er með endómetríósu og þetta mun vonandi koma í veg fyrir frekari verki tengda þeim sjúkdómi. Það er ekki víst þó … það kemur í ljós á næstu mánuðum.“

Missti sjónina

Í kjölfar aðgerðarinnar upplifði hún óvæntan fylgikvilla þegar hún missti tímabundið sjónina. „Ég missti svo tímabundið sjónina eftir aðgerðina því ég hef líklegast í svefni snert ógeðislímmiðan sem var settur á mig fyrir aðgerð og snert svo á mér augun. Þá stækka víst augasteinarnir og maður getur misst sjónina að hluta til í allt að 72klst.“ Hún segir batann hafa verið hraðan. „Ég fór að geta lesið aftur skilaboð í símanum mínum á mánudaginn 😅,“ segir María Birta í skriflegu svari til Mannlífs.

Þrátt fyrir aðgerðina og batatímann lét María Birta það ekki stoppa sig í vinnu. „Mér líður vel núna, fór í aðgerðina á föstudaginn og gerði 2 sýningar í gær á miðvikudegi 😅,“ skrifar María Birta en hún leikur Sister Victoria í sýningunni Atomic Saloon Show.

Hún viðurkennir þó að hún hafi verið í vafa fyrirfram, sérstaklega vegna eðlis starfs síns. „Ég þori að viðurkenna að ég vissi ekki hvort ég væri tilbúin til þess, vinnan mín auðvitað frekar óhefðbundin, svolitlir verkir eftir báðar sýningarnar en ekkert sem að ég höndla ekki ☺️ Bara áfram með smjörið 😂“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“
Heimur

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

Limminnsti maður heims biðst afsökunar
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum
Myndband
Heimur

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu
Myndir
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

Gríma Björg Thorarensen sá um hönnun
Selja eitt óhefðbundnasta einbýli Íslands
Myndir
Fólk

Selja eitt óhefðbundnasta einbýli Íslands

Listakonan á bakvið Palestínuverkið hrindir af stað alþjóðlegu vegglistaverkefni
Fólk

Listakonan á bakvið Palestínuverkið hrindir af stað alþjóðlegu vegglistaverkefni

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku
Viðtal
Fólk

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku

Finnskt bjálkahús til sölu á frábærum stað
Myndir
Fólk

Finnskt bjálkahús til sölu á frábærum stað

„Fjórða valdið dó í Covid”
Fólk

„Fjórða valdið dó í Covid”

Loka auglýsingu