
Helgi Bjartur Þorvarðarson, sem hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni á heimili þess í Hafnarfirði í september á síðasta ári, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald en Vísir greinir frá þessu.
Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa keypt vændi.
Helgi Bjartur hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 14. janúar en hann neitar sök í málinu.
„Það sem ég er sakaður um að hafa gert er mér sjálfum óskiljanlegt og hefur sett líf mitt og fjölskyldu minnar í rúst. Það eina sem ég veit er að í því húsi sem sagt er að ég hafi farið inn í þessa nótt býr kona sem ég taldi á þessum tímapunkti bestu vinkonu mína. Ég skil að orð mín breyta ekki þeirri upplifun og þeim ótta sem barn og fjölskylda þess bera. Ég finn til með barninu og fjölskyldu þess vegna þess ótta og sársauka sem þau upplifa í dag. Ég mun aldrei geta afturkallað það að hafa fallið á bindindi mínu, en tek aftur fram að ég er ekki sekur um það sem ég er ákærður fyrir,“ sagði Helgi Bjartur í yfirlýsingu

Komment