1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

3
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

4
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

5
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

6
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

7
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

8
Minning

Megas er látinn

9
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

10
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

Til baka

Óánægja með myndband Hagstofunnar um daglegt líf kvenna

„Töluðuð þið bara við konur í hálfu starfi?“

Hagstofan
Niðurstöður úr könnuninniUm er að ræða tilraunatölfræði
Mynd: Facebook-skjáskot

Talsverðrar óánægju gætti í athugasemdakerfum Hagstofu Íslands þegar stofnunin birti myndskeið í tilefni af konudeginum sem var í gær. Myndskeiðið sýndi hvernig konur eyði venjulegum degi, samkvæmt könnun stofnunarinnar.

Þar kom meðal annars fram að þær sofi 8,9 klukkustundir á dag, 4,5 klukkustundir á dag við nám, vinnu, ferðalög og annað, sinni öðrum 0,9 klst á dag og eyði 3,2 klst daglega í afþreyingu.

Í athugasemdum við myndskeiðið mátti sjá talsverða gagnrýni frá konum en ein þeirra sagði meðal annars:

„Ég skil þetta ekki. 4,5 tímar í nám eða vinnu? Töluðuð þið bara við konur í hálfu starfi?“

Önnur skrifaði: „3 tíma í að sinna eigin þörfum (fjölmörg hláturtjákn) og nærri 9 tímum í svefn. Hverjir svöruðu þessari könnun - karlar?“

Þá skrifaði enn önnur: „Þykir Hagstofu Íslands forsvaranlegt að birta niðurstöður könnunar þar sem aðeins 17% aðspurðra svöruðu könnuninni?“

Eftir viðbrögðunum tóku útvarpsfólkið Gunna Dís og Atli Fannar, sem stjórna Morgunútvarpinu á Rás 2 en í morgun ræddu þau við Anton Örn Karlsson, deildarstjóra félagsmálatölfræði hjá Hagstofu Íslands, sem útskýrði málið.

Sagði hann að um svokallaða tilraunatölfræði væri að ræða og að tölurnar sýndu meðaltal. „Það er vandamálið með meðaltöl ...,“ svaraði Anton Örn hlæjandi aðspurður hvaða kona þetta væri sem kom fram í könnuninni og hélt áfram: „Þau eru ekki voðalega lýsandi þegar maður fer að bera sig sjálfan við þau en það er talsverð dreifing á bakvið þessar tölur og út úr þessum meðaltölum fáum við þetta.“

Anton útskýrir síðan frekar rannsóknina en hún var gerð 2023, þar sem í tvo daga voru valdir nærri 5000 manns úr Þjóðskrá til að taka þátt í rannsókninni. Annar dagur rannsóknarinnar var virkur dagur en hinn var helgardagur. Þá greindi Anton frá því í viðtalinu að um væri að ræða konur á öllum aldri en hann viðurkennir að svarhlutfallið hafi verið mjög lágt, ekki nema 17,7 prósent en að Hagstofan hafi sett mikla fyrirvara við rannsóknina þegar hún var fyrst birt. „Þess vegna birtum við þetta ekki sem hefðbundnar hagtölur heldur undir þessu tilraunatölfræði yfirheiti sem þýðir að þetta er svona work in progress,“ sagði Anton.

Atli Fannar spurði Anton nánar út í viðbrögðin við myndbandinu á Facebook, meðal annars út í þá spurningu hvort karlmaður hafi gert myndbandi, jafnvel með „annarlegar hvatir“ í ljósi þess að það var birt á konudaginn. Anton hló og sagðist efast um það, þó hann viti ekki hver hafi get „þetta ágæta myndband“ en að þetta hafi þó vakið athygli á hagtölum og fengið fólk til að hugsa út í það hvernig það eyðir deginum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Grunaður morðingi hefur yfirgefið England
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu