Ein manneskja lést og um tíu til viðbótar slösuðust í drónaárás Úkraínu á rússneskt hernumið svæði í suðurhluta Zaporizhzhia-héraðs aðfaranótt sunnudags, að sögn rússneskra yfirvalda.
Samkvæmt upplýsingum frá embættismönnum í sveitarfélaginu Vasylivka fannst lík konu í rústum íbúðarhúss sem kviknaði í eftir að dróni hafði lent á byggingunni. Myndband sem birt var á samfélagsmiðlinum VK sýndi slökkviliðsmenn berjast við eld í fjölbýlishúsi sem talið er að hafi orðið fyrir árásinni.
Natalía Romanichenko, embættismaður í Vasylivka, sagði í samtali við rússnesku ríkisfréttastofuna TASS að fleiri en tíu manns hefðu slasast í árásinni.
Á sama tíma greindu úkraínsk yfirvöld frá rússneskri árás í Kharkiv-héraði í norðausturhluta landsins. Þar særðust þrír íbúar í þorpinu Velyka Babka eftir að rússneskir drónar gerðu árás á svæðið.
Samkvæmt úkraínsku neyðarþjónustunni hófst árásin með dróna sem kveikti í húsi og særði þrjá. Þegar slökkviliðsbíll var sendur á vettvang hafi annar dróni síðan hæft slökkvibílinn.
Á föstudags- til laugardagsnótt létust einnig 12 manns í Úkraínu þegar Rússland skaut fjölda eldflauga og dróna að skotmörkum í landinu. Að minnsta kosti tíu létust í borginni Kharkiv þegar eldflaug lenti á fimm hæða íbúðarhúsi.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði á samfélagsmiðlum í dag að Rússland hefði á síðustu viku beitt nærri 1.750 árásardrónum, 1.530 stýrðum sprengjum úr lofti og 39 eldflaugum gegn Úkraínu og íbúum landsins.

Komment