Í morgun skrifaði Morgunblaðið frétt þar sem haft var eftir nafnlausum heimildarmönnum innan lögreglunnar að menn sem handteknir voru vegna líkamsárásar á Höfðatorgi væru meðlimir Hamas-samtakanna og sé hluti þeirra á lista alþjóðalögreglunnar Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn.
Í hádeginu í dag sendi lögreglan á höfuðborgarsvæðinu frá sér tilkynningu þar sem þessum fullyrðingum er neitað að öllu leyti.
Viðbrögðin á veraldarvefnum hafa ekki stoppað síðan lögreglan gaf út tilkynninguna.
„Þetta er sett í stríðsfyrirsögn. Hverjar voru heimildirnar? Þetta er grafalvarlegt mál,“ skrifar tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson um málið í þræði á Facebook hjá Agli Helgasyni.
„Mogginn hefur lagst lægra en nokkru sinni,“ „skrifar leikarinn Pálmi Gestsson um fréttina
„Ég ætla rétt að vona að þau sendi afsökunarbeðni. En afsökunarbeðni varðandi svona viðkvæman málaflokk mun ekki skila miklu - og mun sumt fólk trúa þessu statt og stöðugt þrátt fyrir hana. Skaðinn er skeður, og held ég að höfundur þessarar „fréttar“ viti það vel. Þetta er stundað í Bretlandi til dæmis, með góðum árangri götupressunnar,“ skrifar baráttukonan Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir.
„Það er auðvitað bara grafalvarlegt að MBL haldi fram einhverjum svona staðreyndum sem eru ekki á rökum reistar. Það segir ýmislegt um áreiðanleika þeirra - því ef farið er svona frjálslega með staðreyndir og þær jafnvel skáldaðar, er þá eitthvað hægt að treysta öðru efni frá fréttamiðlinum?
Það mun fjöldinn allur af fólki trúa þessum staðhæfingum - og mun trúa þeim statt og stöðugt þrátt fyrir leiðréttingar. Hér er því skaðinn skeður, og áróðri dreift sem mun koma til með að ala á andúð í garð ákveðinna þjóðfélagshópa,“ sagði hún einnig á eigin Facebook-síðu.


Komment