
Ljósmynd sem virðist sýna Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi hertoga af Jórvík, með meintu fórnarlambi Jeffrey Epstein sitjandi í fanginu á sér hefur nú verið birt af bandaríska dómsmálaráðuneytinu.
Á myndinni sést maður í blárri skyrtu og grárri hettupeysu með handleggina utan um ljóshærða konu sem situr í fanginu á honum. Aldur konunnar er óþekktur. Myndin virðist hafa verið tekin í húsi Epsteins á Manhattan og maðurinn líkist Andrew prinsinum
Á annarri mynd sem einnig var birt í dag, sést sami maður sitja á stól á meðan önnur ung kona stendur fyrir aftan hann með handleggina um háls hans. Andlit kvennanna tveggja hafa verið hulin af yfirvöldum, líkt og gert er með allar konur sem dómsmálaráðuneytið telur hafa verið fórnarlömb Epsteins.
Myndirnar eru litlar og í lágri upplausn en virðast hafa verið teknar í borðstofu raðhúss Epsteins í New York. Þær eru meðal um 180.000 ljósmynda sem bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur birt samkvæmt lögum um gagnsæi í Epstein-skjölunum.
Andrew, sem er 66 ára, dvaldi í húsi Epsteins á Manhattan í heila viku í desember árið 2010. Í viðtali við BBC-þáttinn Newsnight árið 2019 sagðist hann hafa farið þangað vegna þess að hann væri „of heiðvirður“ til að kveðja ekki dæmda barnaníðinginn persónulega.
Skjöl og samskipti sem dómsmálaráðuneytið hefur birt benda hins vegar til þess að þeir hafi eytt tíma saman í samkvæmislífi í ferðinni og haldið áfram samskiptum eftir hana. Ein mynd sem birt var í janúar sýnir Andrew á fjórum fótum halla sér yfir unga konu. Talið er að hún hafi einnig verið tekin í borðstofu heimilis Epsteins í heimsókninni árið 2010.
Rannsakendur hafa bent á að Andrew virðist á myndunum klæðast svipuðum gallabuxum og hann var í þegar hann var myndaður á göngu í Central Park 2. desember 2010. Á myndunum má einnig sjá áberandi rauð- og hvítstrípaðan dúk á borði í bakgrunni.
Andrew prins dró sig að mestu úr opinberu lífi eftir að Virginia Giuffre sakaði hann um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi þegar hún var 17 ára, eftir að Epstein hefði „lánað“ hana honum. Andrew hefur ávallt neitað þeim ásökunum. Í fyrra svipti Karl III Bretakonungur bróður sinn síðustu konunglegu titlum hans.
Eftir birtingu um þriggja milljóna skjala sem tengjast Epstein var Andrew handtekinn í febrúar, grunaður um misferli í opinberu starfi. Lögreglan í Thames Valley rannsakar ásakanir um að hann hafi látið Epstein í té viðkvæmar upplýsingar á meðan hann starfaði sem viðskiptafulltrúi Bretlands.
Tölvupóstar sem birtir hafa verið undanfarið virðast einnig benda til þess að Epstein hafi kynnt Andrew fyrir ungum konum eftir að fjármálamaðurinn var dæmdur árið 2008 í Flórída fyrir að hafa sótt sér vændi hjá ólögráða stúlku.
Í tölvupósti frá ágúst 2010 bauð Epstein Andrew að hitta „fallega“ 26 ára rússneska konu. Í síðar sendum pósti sagðist konan hafa átt „frábært kvöld“. Mánuði síðar skrifaði Epstein að hann myndi koma með nokkrar konur í kvöldverð í Buckingham-höll, þar á meðal eina sem hann lýsti sem „rúmenskri og mjög sætri“.
Vinátta Andrew við Epstein hefur lengi verið til skoðunar. Epstein umgekkst marga auðuga og áhrifamikla einstaklinga í heimi konungsfjölskyldna, viðskipta og stjórnmála.
Andrew var einnig vinur Ghislaine Maxwell, breskrar yfirstéttarkonu sem aðstoðaði Epstein við að halda utan um tengslanet hans og eignir. Hún var dæmd í New York árið 2021 fyrir meðal annars mansal á ólögráða stúlkum og samsæri um að laða ungar stúlkur til Epsteins.
Maxwell, dóttir fjölmiðlamógúlsins Roberts Maxwell, afplánar nú 20 ára fangelsisdóm.
Epstein sjálfur var handtekinn í júlí 2019 fyrir alríkisákærur um mansal á ólögráða stúlkum. Mánuði síðar fannst hann látinn í fangaklefa í New York þar sem hann beið réttarhalda. Dauði hans var úrskurðaður sjálfsvíg með hengingu, þó að hann hafi vakið miklar vangaveltur almennings.
Breskir miðlar hafa leitað eftir viðbrögðum Andrew við nýju myndunum en engin svör hafa borist. Hann hefur ávallt neitað öllum ásökunum um misferli.

Komment