
Nú er ljóst að Ari Edwald mun leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum en hann hefur verið mikill stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins í gegnum árin.
Ari hefur komið að stofnun og rekstri stórra fyrirtækja á Íslandi og er hægt að nefna MS og 365 í því samhengi. Hann var einnig framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins um tíma og sömuleiðis aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar, fyrst fjögur ár í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og síðan önnur fjögur í sjávarútvegsráðuneytinu.
Vítalía Lazareva lagði fram kæru á hendur Ara og tveimur öðrum áhrifamönnum vegna meintra kynferðisbrota sem áttu að hafa átt sér stað í sumarbústað árið 2020. Rannsókn málsins var hins vegar felld niður árið 2023. Síðar kærðu Ari og hinir tveir mennirnir Vítalíu fyrir meinta fjárkúgun, en því máli var einnig hætt skömmu síðar.
Ari tilkynnti þetta sjálfur á Facebook og hafa margir óskað honum góðs gengis, þar á meðal Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður og fyrrverandi Alþingismaður, Ólöf Skaftadóttir hlaðvarpsþáttastjórnandi og fjölmiðlmaðurinn Frosti Logason
„Til hamingju dairy king!“ skrifaði Ólöf.
Samkvæmt Þjóðskrá er Ari með lögheimili í Portúgal.

Komment