1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

3
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

4
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

5
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

6
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

7
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

8
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

9
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

10
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Til baka

Vilhjálmur og Katrín rjúfa þögnina eftir nýjustu Epstein-skjölin

Vilhjálmur prins og Katrín eiginkona hans hafa rofið þögnina með yfirlýsingu eftir nýjustu birtingu Epstein-skjalanna, þar sem nafn Andrews, fyrrverandi prins, kemur aftur fyrir.

Vilhjálmur prins og Katrín prinsessa
Krónprinsinn og prinsessanVilhjálmur og Katrín eru uggandi
Mynd: AARON CHOWN / POOL / AFP

Vilhjálmur prins og Katrín hafa nú gefið út yfirlýsingu í kjölfar birtingar nýjustu skjalanna um barnaníðinginn Jeffrey Epstein, á sama tíma og hinn vansæmdi fyrrverandi prins, Andrew sætir endurnýjaðri gagnrýni vegna tengsla sinna við hinn látna barnaníðing.

Fram kom í dag að prinsinn og prinsessan af Wales hafi verið „afar uggandi“ vegna nýjustu upplýsinga í Epstein-skjalasafninu. Vilhjálmur prins hefur falið háttsettum aðstoðarmönnum sínum að greina í fyrsta sinn frá því hversu slegin þau hafi verið yfir umfangi ásakananna, sem meðal annars varða hinn smánaða frænda hans, Andrew Mountbatten-Windsor, og að þau vilji senda fórnarlömbunum samúðarkveðjur sínar.

Þetta kemur fram á sama tíma og prinsinn af Wales byrjar í dag þriggja daga heimsókn til Sádi-Arabíu, eins helsta bandamanns Bretlands í Miðausturlöndum.

Áður en hann kom til Riyadh sagði talsmaður Kensington Palace: „Ég get staðfest að prinsinn og prinsessan hafa verið afar uggandi vegna áframhaldandi uppljóstrana. Hugur þeirra er áfram hjá fórnarlömbunum.“

Nýjar ásakanir

Þann 30. janúar birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna um þrjár milljónir blaðsíðna til viðbótar, þar á meðal 2.000 myndbönd og 180.000 ljósmyndir, sem tengjast rannsókn á Jeffrey Epstein. Nafn Andrews kemur margoft fyrir í nýjustu birtingu gagnanna, þar á meðal á myndum þar sem hann sést bogra yfir óþekkta konu í því sem virðist vera höfðingjasetur Epsteins í New York.

Andrew, sem var í síðustu viku endanlega vísað úr Royal Lodge-setri sínu í Windsor eftir reiði konungs vegna þess að Andrew hélt áfram að sýna sig opinberlega, þar sem hann sást ríða hestum og veifa fólki á konungseigninni, þrátt fyrir að vera mjög viðriðinn nýjustu Epstein-tölvupóstunum og standa frammi fyrir fjölda nýrra ásakana. Þar á meðal eru fullyrðingar um að önnur kona hafi verið send til Bretlands af barnaníðingnum Epstein til kynferðislegra samskipta við Andrew, og að Andrew og Epstein hafi beðið nektardansara um trekant á heimili Epsteins í Flórída.

Árið 2022 greiddi fyrrverandi hertoginn af York 12 milljónir punda til Virginia Giuffre, helsta ákæranda síns, þrátt fyrir að halda því fram að hann hefði aldrei hitt hana. Andrew hefur ávallt harðlega neitað allri sök.

Konungurinn svipti bróður sinn öllum titlum og heiðursnafnbótum í október síðastliðnum í kjölfar útgáfu bókar Giuffre eftir andlát hennar, þar sem hún sagði frá því að hún hefði verið seld í mansali af Epstein og fyrrverandi kærustu hans, Ghislaine Maxwell, 17 ára gömul og neydd til að stunda kynlíf með Andrew í þrígang árið 2001. Andrew sætir vaxandi þrýstingi um að bera vitni fyrir bandarískum rannsakendum sem rannsaka glæpi hins látna milljarðamærings, en konunglegir heimildarmenn segja: „Allir sem hafa upplýsingar ættu að íhuga að aðstoða við hverja þá rannsókn sem gerð verður.“

Í gær kom einnig í ljós að Andrew, 65 ára, bauð Epstein og „mjög sætri“ rúmenskri konu í kvöldverð í Buckingham Palace, samkvæmt tölvupóstum. Henni var boðin í matarboðið að beiðni Epsteins í september 2010, þegar hann var staddur í London og vildi að hún kæmi með honum í einkafund í höllinni.

Skjöl sem birt voru sem hluti af Epstein-skjalasafninu benda til þess að hún hafi verið meðal hóps fólks sem fylgdi barnaníðingnum. Epstein sagði henni síðar að Andrew hefði talið hana „fallega“.

Frekari uppljóstranir í þessum mánuði hafa varpað ljósi á víðtækt tengslanet Epsteins, þar á meðal vandræðaleg samskipti við Söruh Ferguson, fyrrverandi eiginkonu Andrews, sem á að hafa beðið barnaníðinginn að giftast sér. Fyrrverandi hertogaynjan af York, sem ásamt eiginmanni sínum var einnig svipt titlum sínum af konungi vegna tengsla sinna við Epstein, fór jafnframt með dætur sínar í heimsókn til kynferðisglæpamannsins í New York aðeins fimm dögum eftir að hann var látinn laus úr fangelsi árið 2009.

Diplómatísk prófraun Vilhjálms

Fyrsta heimsókn Vilhjálms til Sádí-Arabíu, að beiðni breskra stjórnvalda, er talin verða erfiðasta diplómatíska prófraun hans til þessa á erlendum vettvangi. Konunglegur heimildarmaður sagði: „Prinsinn og prinsessan af Wales fól aðstoðarmönnum sínum að koma yfirlýsingunni á framfæri fyrir þeirra hönd fyrir erfiðustu diplómatísku ferð Vilhjálms til þessa, svo hann gæti einbeitt sér að mikilvægu hlutverki sem stjórnvöld hafa falið honum næstu daga.“

Þegar forsætisráðherrann Keir Starmer hitti sádí-arabíska leiðtogann, krónprinsinn Mohammed bin Salman, árið 2024 var hann sakaður um að setja efnahagsvöxt ofar mannréttindum. Stjórn krónprinsins, sem jafnan er nefnd með upphafsstöfunum MBS, hefur verið sökuð af mannréttindasamtökum um víðtæka beitingu dauðarefsingar, ofsóknir gegn fólki sem nýtir tjáningarfrelsi sitt og að standa fyrir menningu þar sem farandverkafólk verður fyrir misnotkun.

Ímynd Mohammeds krónprins hlaut alvarlega hnekki þegar bandarísk leyniþjónusturannsókn leiddi í ljós að hann hefði skipað fyrir morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018. Landið hefur einnig sætt ásökunum um svokallað „íþróttahvítþvott“, þar sem fjárfest er í stórum íþróttaviðburðum, svo sem heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem landið mun halda árið 2034, til að beina athyglinni frá meintu misferli og varpa jákvæðari mynd á landið.

Stjórn Starmer hefur styrkt samskipti við Sádi-Arabíu með nýlegum heimsóknum fjármálaráðherra og utanríkisráðherra. Ferð Vilhjálms verður fyrsta opinbera utanlandsferð hans árið 2026 og jafnframt fyrsta ferð hans til Miðausturlanda síðan hann heimsótti Kúveit árið 2023 til að votta samúð vegna andláts Sheikh Nawaf Al Ahmad Al Sabah, fyrrverandi þjóðarleiðtoga landsins.

Prinsinn af Wales mun verja tíma í að hitta næstu kynslóð ungra Sádi-Araba, fræðast um framtíðaráform landsins, þar á meðal skuldbindingar þess í sjálfbærnimálum, og ferðast til söguborgarinnar AlUla til að kynna sér aðgerðir til verndar náttúru, dýralífi og landslagi svæðisins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Var gripinn glóðvolgur í Garðabæ
Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg
Innlent

Vilja heimila hótelbyggingu við Grensásveg

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Innlent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Hafði búið þar í 35 ár
Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Loka auglýsingu