1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

8
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

9
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

10
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

Til baka

Hildur vill ekki sjá grænlenska fánann við ráðhúsið

Borgarfulltrúi Sjálfstæðiflokksins gagnrýnir það sem hann kallar „fánaborg fáránleikans“

Hildur Björnsdóttir
Hildur BjörnsdóttirHildur er ósátt með hugmynd meirihlutans
Mynd: Víkingur

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega áform meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur um að draga fána Grænlands að húni við Ráðhús Reykjavíkur, til viðbótar við fána Palestínu og Úkraínu. Hún segir borgarstjórn vera að fara út fyrir sitt hlutverk og kallaði tillöguna „fánaborg fáránleikans“ í Facebook-færslu sem hún birti fyrir stundu.

Í færslunni bendir Hildur Björnsdóttir á að þótt samúð Íslendinga standi með Grænlendingum eigi borgarstjórn ekki að blanda sér í utanríkismál. „Vissulega er hugur okkar allra hjá vinum okkar á Grænlandi – en borgarstjórn hefur ekkert með utanríkismál að gera og ætti almennt ekki að flagga erlendum þjóðfánum við Ráðhúsið, nema við opinberar heimsóknir,“ skrifar hún.

Hildur rifjar jafnframt upp að hún hafi sjálf lagt fram tillögu fyrir átta mánuðum um að íslenski fáninn yrði dreginn að húni við Ráðhúsið alla daga ársins, án þess að hún hafi fengið afgreiðslu. „Meirihlutinn hefur ekki enn treyst sér til að afgreiða tillöguna. Það er hins vegar lítið hik í vinstrinu þegar kemur að fánaborg erlendra þjóðfána,“ segir hún.

Að hennar mati er of miklum tíma varið í táknræn mál á kostnað raunverulegra verkefna borgarinnar. Hún bendir á að borgarráð muni funda í þriðja sinn um málið á fimmtudag og gagnrýnir þá forgangsröðun. „Tímanum eytt í dygðaskreytingar meðan borgarbúar bíða lausna við þeim fjölmörgu áskorunum hversdagsins sem borgarstjórn getur leyst – samgönguvandanum, leikskólavandanum, húsnæðisvandanum,“ skrifar hún.

Í lok færslunnar kallar Hildur eftir pólitískum breytingum í borginni og segir að nú sé tímabært að skipta um kúrs. „Það er kominn tími á breytingar. Nýtt fólk með nýjar áherslur. Meirihluta sem skilur kjarnann frá hisminu – skilur verkefnið og setur íbúa Reykjavíkur í forgang.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé
Menning

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

„Við erum sennilega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitthvað eftir ósagt.“
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Vísar á bug sölu á Landsvirkjun
Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Loka auglýsingu