Lárus Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu og oddviti Miðflokksins í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum, vill leggja niður Matvælastofnun. Hann greindi frá þessu í Rauða borðinu á Samstöðinni í gær.
Margt var rætt í þættinum í gær og þar á meðal ESB, verðbólga og fjölmiðlaumhverfið á Íslandi.
Lárus var spurður í þættinum hvað hann myndi gera ef hann væri forsætisráðherra eða fjármálaráðherra.
„Lausnin væri fyrst og fremst sú að lækka ríkisútgjöld, það er útgangspunkturinn. Um leið og það kemur þá verða fjöláhrif út í samfélagið,“ sagði Lárus og að það þurfi að taka til í fjármálum ríkisins og mögulega segja upp fólki. Ríkið þurfi að spara eins og heimili landsins. Hann telur ríkisstjórnina skorta skynsemi og framtíðarsýn.
Björn Þorláksson, stjórnandi Rauða borðsins, spurði í kjölfarið um dæmi um hvernig Lárus myndi lækka ríkisútgjöldin.
„Ég myndi leggja niður nokkrar stofnanir. Ég myndi til dæmis byrja á MAST sem, að mínu mati, er að gera lítið gagn og maður er alltaf að fylgjast með fleiri og fleiri sögum af því sem illa gengur þar,“ svaraði Lárus.
Rétt er að benda á að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur sagt að til standi að sameina MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu og sú stofnun eigi að taka til starfa í janúar á næsta ári ef allt gengur eftir.
Hlutverk og verkefni MAST
MAST vinnur að matvælalöggjöf í samvinnu við ráðuneytið og á þetta við um löggjöf í allri fæðukeðjunni, þ.e. frá heilbrigði og velferð dýra, þ.m.t. sjávarafurða, plöntuheilbrigði, fóðri, vinnslu og dreifingu og þar til matur er borinn á borð neytenda. Stofnunin fer með eftirlit með frumframleiðslu búfjárafurða, sláturhúsum, kjötvinnslum, mjólkurbúum og eggjaframleiðslu, eftirlit með sjávarafurðum og allt inn- og útflutningseftirlit með matvælum. MAST fer einnig með yfirumsjón með matvælaeftirliti á vegum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og eftirlit með störfum dýralækna sem veita almenna dýralæknaþjónustu og öðrum sem sinna heilbrigðisþjónustu við dýr.
Einnig fer stofnunin með fóðureftirlit og önnur verkefni eins og sjá má á eftirfarandi lista yfir helstu verkefni MAST:
- Matvælalöggjöf og matvælaeftirlit
- Neytendavernd og fræðslumál
- Heilbrigði og velferð dýra
- Plöntuheilbrigði og sáðvara
- Fóður og áburður
- Sóttvarnir og viðbragðsáætlanir
- Kjötmat og fiskeldi
- Inn- og útflutningseftirlit, rekstur landamærastöðva
- Yfirumsjón og eftirlit: Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, heilbrigðisþjónusta við dýr
- Stjórnsýsluverkefni: Lögfræði, alþjóðamál, samræming og úttektir


Komment