1
Peningar

„Nablinn“ hefur fyrirtækjarekstur

2
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

3
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue ákærð

4
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

5
Menning

Jón Adólf með eina óvenjulegustu listasýningu Kaupmannahafnar

6
Pólitík

Sólveig Anna gagnrýnir Ingu Sæland harðlega

7
Pólitík

Feminísk fötlunarhreyfing styrkt um milljónir

8
Innlent

Verslun í Laugardalnum rænd

9
Innlent

Reykvíkingur faldi tíu þúsund evrur í skóm

10
Heimur

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð

Til baka

Svaraði árás Jóns með rappi hjá Gísla Marteini

Félagsmálaráðherrann úr Breiðholtinu leynir á sér.

Ragnar Þór Ingólfsson félagsmálaráðherra rappar
Ragnar ráðherra„Fyrirbærið“ og „götustrákurinn“ Ragnar Þór Ingólfsson svaraði fyrir sig í Breiðholtsstíl.
Mynd: Skjáskot / RÚV

Ragnar Þór Ingólfsson fékk að svara fyrir að vera kallaður götustrákur á Alþingi þegar hann var gestur hjá Gísla Marteini Baldurssyni í þætti hans á RÚV í gærkvöldi.

Fáir vita að Ragnar Þór, sem er uppalinn í Breiðholtinu, var ekki saklaus af því að hafa rappað sem ungur piltur. Sjálfur sagðist hann hafa litið út fyrir að vera 12 ára þegar hann var sextán og rappaði.

Fyrrverandi ráðherra og núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Gunnarsson, hafði sagt Ragnar vera eins og „ótíndur götustrákur“ vegna frumvarps hans um að tengja lífeyrisgreiðslur sjálfkrafa við þróun launavísitölu. „Hvaða kom þetta fyrirbæri hingað inn á þing?“ spurði hann, degi áður en hann baðst afsökunar.

Sjálfur segist Ragnar hafa verið týndur sem ungur maður, en nú sé hann ótíndur.

Gísli Marteinn, fæddur 1972, og Ragnar, fæddur 1974, gengu í sama skóla og fullyrðir Gísli að Ragnar hafi verið í fyrstu rapphljómsveit Breiðholtsins.

Í rappatriðinu í Breiðholti 1989 fjallaði Ragnar Þór um frægðina, sem hann hefur nú loks innsiglað.

„Ég heiti Raggi er fínn og smár,“ rappaði Ragnar. „Ef ekki verðum frægir á þessu ári, þá detti allar dauðar lýs úr mínu hári.“

Í nýju rappi hjá Gísla Marteini ávarpaði Ragnar ráðherra „tvöfaldan lás“, sem vísar í gagnrýni stjórnarandstöðunnar um að lífeyrisþegar muni hækka í tekjum bæði ef verðlag hækkar og ef almenn laun hækka, sem þeir telja of dýrt fyrir ríkissjóð.

Þessu svaraði Ragnar, ráðherrann rappandi.

„Lífeyrir hann tengist, vísitölu í. Hvernig getur nokkur maður brjálast yfir því? Bætur hafa hækkað, varla balabaun. Ég vil bara að allir fái mannsæmandi laun.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja
Innlent

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja

Lögreglan biður fólk að varst þessa tölvupóst
Oddviti Miðflokksins vill loka MAST
Pólitík

Oddviti Miðflokksins vill loka MAST

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“
Pólitík

Sagnfræðingur segir Trump hafa breyst í „stríðsforseta“

Handtekinn eftir hættulega eftirför á Tenerife
Heimur

Handtekinn eftir hættulega eftirför á Tenerife

Íran hótar harðari árásum eftir skemmdir á orkuinnviðum
Heimur

Íran hótar harðari árásum eftir skemmdir á orkuinnviðum

Ellefu ára drengur ákærður fyrir að myrða litla bróður sinn
Heimur

Ellefu ára drengur ákærður fyrir að myrða litla bróður sinn

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

Val Kilmer „leikur“ í nýrri kvikmynd
Heimur

Val Kilmer „leikur“ í nýrri kvikmynd

Gary Glitter sagður „á síðasta snúningi“ í fangelsinu
Heimur

Gary Glitter sagður „á síðasta snúningi“ í fangelsinu

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi
Innlent

Kalla eftir banni við loðdýraeldi á Íslandi

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu
Myndir
Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð
Heimur

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð

Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu
Myndir
Fólk

Rosalega huggulegt raðhús í Löndunum til sölu

Húsið var byggt árið 1969
Vélmennahúsið í Árbænum sett á sölu
Myndir
Fólk

Vélmennahúsið í Árbænum sett á sölu

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús
Myndir
Fólk

Óska eftir tilboðum í ARKO-hús

Selja dýrasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja dýrasta parhús landsins

Ofurstjarna dáðist að íslenskri náttúru
Myndir
Fólk

Ofurstjarna dáðist að íslenskri náttúru

„Hvenær ætlum við að vakna upp af dáleiðslunni?”
Myndband
Fólk

„Hvenær ætlum við að vakna upp af dáleiðslunni?”

Loka auglýsingu